Mikið afrek hjá Helga Ólafssyni að vera á leið á sitt 21. Ólympíuskákmót

Kristján Örn Elíasson ræddi við Magnús Pálma Örnólfsson skákmeistara og hagfræðing MBA í þættinum Við skákborðið um Ólympíuskákmótið sem fram fer í Samarkand í Úsbekistan 15.–27. september. Helgi Ólafsson verður liðsstjóri opnu sveitar Íslands og fer þar á sitt 21. Ólympíuskákmót en íslenska sveitin er númer 49 af 193 þjóðum í styrkleikaröð mótsins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Fjórir stórmeistarar í opnu sveitinni

Opnu sveit Íslands skipa Vignir Vatnar Stefánsson, Hilmir Freyr Heimisson, Jóhann Hjartarson, Hannes Hlífar Stefánsson og Guðmundur Kjartansson.
4 þeirra eru stórmeistarar en Hilmir Freyr er alþjóðlegur meistari og jafnframt ríkjandi Íslandsmeistari. Vignir Vatnar verður á fyrsta borði.

Kristján benti á að Jóhann Hjartarson hefði um árabil teflt á efstu borðum íslenska landsliðsins og mikil styrking væri fólgin í því að geta haft jafn reyndan skákmann aftar í borðaröðinni. Skákmenn á fyrstu borðum mæta að jafnaði sterkustu andstæðingunum þegar vel gengur hjá sveitinni.

Magnús sagði íslenska liðið góða blöndu reynslumikilla manna og yngri skákmanna.

Kvennasveitin númer 84 af 181

Kvennasveit Íslands er númer 84 af 181 þjóð í styrkleikaröðinni. Sveitina skipa Lenka Ptacnikova, Guðrún Fanney Briem, Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, Iðunn Helgadóttir og Hrund Hauksdóttir. Ingvar Þór Jóhannesson verður liðsstjóri.

Kristján sagði ungar og efnilegar skákkonur vera í hópnum og nefndi sérstaklega Iðunni sem hefði sýnt að hún gæti veitt mun stigahærri andstæðingum harða keppni þegar hún fyndi taktinn.

21.mótið hjá Helga

Helgi Ólafsson verður liðsstjóri opnu sveitarinnar og er nú á leið á sitt 21. Ólympíuskákmót. Magnús sagði það mikið afrek en Helgi hefur komið að íslenskri landsliðsskák um áratugaskeið og býr yfir mikilli reynslu sem nýtist sveitinni bæði fyrir og meðan á mótinu stendur.

Fyrsta umferð Ólympíuskákmótsins verður tefld 16. september og hægt verður að fylgjast með skákunum í beinni.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila