Mikil uppsveifla í atvinnulífinu á Suðurnesjum

Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Vilhjálm Árnason, bæjarstjóra Reykjanesbæjar og Gunnlaug Kárason, formann bæjarráðs, í þættinum Skipulagsmál, um umfangsmikla atvinnuuppbyggingu sem er hafin eða fyrirhuguð í Reykjanesbæ og á Suðurnesjum. Gunnlaugur sagði meðal annars að fram hefði komið að allt að 850 manns gætu þurft að vinna við næsta uppbyggingaráfanga eins af stóru gagnaverunum í Reykjanesbæ. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

2 stærstu gagnaver landsins

Gunnlaugur sagði 2 stærstu gagnaver landsins, atNorth og Verne, vera í Reykjanesbæ. Annað þeirra hefði stækkað mikið að undanförnu en hitt hefði nýlega kynnt umfangsmikla stækkun.

Hundruð manna hafa þegar komið að uppbyggingunni og á fundi í Hljómahöll kom fram að allt að 850 manns gætu þurft að starfa við næsta uppbyggingaráfanga eins gagnaversins.

Atvinnu- og framkvæmdaþing verður haldið í Hljómahöll 16. september þar sem kynna á þau fjölmörgu verkefni sem eru hafin eða fram undan í sveitarfélaginu.

Beinum störfum gæti fjölgað úr 50 í 150

Vilhjálmur sagði eitt gagnaveranna hafa starfað í Reykjanesbæ í um 15 ár og þar væru nú um 50 bein störf. Fyrirtækið stefndi að því að fjölga beinum störfum í um 150 og taldi Vilhjálmur að samanlögð áhrif, þegar störf undirverktaka og þjónustuaðila væru tekin með, gætu orðið yfir 500 störf.

Hann sagði hitt gagnaverið einnig vera í miklum vexti.

Landeldi og flugstöðin skapa fleiri störf

Uppbyggingin einskorðast ekki við gagnaverin. Gunnlaugur nefndi landeldisverkefni Samherja á Reykjanesi og First Water nálægt Reykjanesvirkjun. Vilhjálmur sagði landeldisverkefnin geta skapað mörg hundruð störf. Flugstöðin heldur jafnframt áfram að stækka og sagði Vilhjálmur þar fjárfest fyrir um 10 til 15 milljarða króna á ári.

Mikill áhugi væri einnig á uppbyggingu í Helguvík þar sem horft væri til fjölbreyttari atvinnustarfsemi en áður.

Þjónustufyrirtækin fylgja stórfyrirtækjunum

Vilhjálmur sagði stóru verkefnin kalla á fjölmörg önnur fyrirtæki í kringum sig. Gagnaver þurfi meðal annars tölvuþjónustu, rafvirkja, pípara og aðra sérhæfða þjónustu nálægt starfseminni. Fyrirtækin vilji ekki þurfa að bíða eftir varahlutum erlendis frá eða þjónustuaðilum sem þurfi að aka frá höfuðborgarsvæðinu.

Því skapist tækifæri fyrir minni þjónustufyrirtæki til að byggja upp starfsemi sína í Reykjanesbæ samhliða vexti stærri fyrirtækjanna.

Nokkur hundruð varanleg störf

Gunnlaugur sagði þegar horft væri yfir heildina vera um að ræða nokkur hundruð varanleg störf auk mun fleiri starfa á framkvæmdatímanum. Uppbyggingin dreifist yfir nokkur ár og markmið sveitarfélagsins er að starfsfólkið sem kemur til starfa við nýju verkefnin festi rætur í Reykjanesbæ.

Sérhæft tækni- og hátæknifólk þurfi bæði atvinnu og húsnæði og því þurfi atvinnuuppbygging, skipulag og húsnæðisframboð að haldast í hendur.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila