Mikill erill hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra

Mikill erill hefur verið hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra á síðasta sólarhring og voru alls 83 mál skráð. Mest var um að vera á Akureyri þar sem fjölmenni er saman komið vegna verslunarmannahelgarinnar, en engin mál komu upp á Siglufirði í tengslum við fjölskylduhátíðina Síldarævintýrið.

Níu handteknir og vopnamál til rannsóknar

Lögreglan handtók alls 9 einstaklinga á sólarhringnum. Einn þeirra var vistaður í fangageymslu vegna gruns um vopnalagabrot á tónleikasvæðinu á Akureyrarvelli. Málið er til rannsóknar.

Þá voru 4 einstaklingar handteknir vegna gruns um fíkniefnalagabrot. Einn þeirra var einnig vistaður í fangageymslu og rannsókn stendur yfir.

Afskipti af börnum vegna ástands

Lögreglan hafði afskipti af börnum í 5 tilvikum vegna ástands þeirra. Barnavernd og foreldrar voru upplýst í öllum málunum.

Auk þess komu upp 8 mál sem tengdust ölvun eða vímuástandi og þurftu 2 einstaklingar að gista í fangageymslu.

Ein líkamsárás og 10 umferðarlagabrot

Ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglu og er það mál til rannsóknar.

Einnig voru skráð 10 umferðarlagabrot. Enginn ökumaður var þó stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímugjafa.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila