
Útvarp Saga flytur kl. 23:00 sérstakan minningarþátt Arnþrúðar Karlsdóttur um tónskáldið og tónlistarmanninn Gunnar Þórðarson þar sem rifjaður er upp einstakur ferill hans og mörg af þekktustu lögum hans hljóma.
Einn áhrifamesti lagahöfundur íslenskrar tónlistarsögu
Gunnar Þórðarson var einn áhrifamesti lagahöfundur íslenskrar tónlistarsögu. Á löngum ferli samdi hann hundruð tónverka sem hafa fylgt þjóðinni í gegnum áratugi og orðið hluti af minningum fólks um æsku, ástir, gleði og sorg. Tónlist hans náði til fólks á öllum aldri og lagasmíðar hans lifa áfram kynslóð eftir kynslóð.
Ferillinn rakinn
Í minningarþættinum er farið yfir fjölbreyttan feril Gunnars, allt frá fyrstu árum hans með Hljómum til síðari verkefna sem festu hann í sessi sem einn af merkustu tónlistarmönnum landsins. Jafnframt eru leikin mörg þeirra laga sem hafa notið mestra vinsælda og skipað honum varanlegan sess í íslenskri tónlist.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan
