Mosfellsbær áætlar 531 milljónar króna rekstrarafgang á næsta ári

Mosfellsbær gerir ráð fyrir 531 milljónar króna rekstrarafgangi árið 2027 samkvæmt fjárhagsáætlun sem lögð var fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn miðvikudaginn 11. nóvember. Áætlaðar rekstrartekjur nema 25,2 milljörðum króna og fjárfestingar verða tæplega 4,4 milljarðar. Þá er gert ráð fyrir 270 milljóna króna hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins, óbreyttu útsvari og að almennar gjaldskrárhækkanir verði takmarkaðar við 2,5%.

Áætlunin er sú fyrsta sem meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggur fram. Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri segir áherslu lagða á ábyrgan rekstur í krefjandi efnahagsumhverfi, hóflegar álögur á íbúa og áframhaldandi uppbyggingu innviða.

Áætla að spara 270 milljónir í rekstri

Samkvæmt fjárhagsáætluninni verða rekstrartekjur Mosfellsbæjar 25.170 milljónir króna og rekstrargjöld 22.359 milljónir. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði er áætluð 1.987 milljónir króna.

Rekstrarafgangur A-hluta bæjarsjóðs er áætlaður 266 milljónir króna og veltufé frá rekstri A- og B-hluta 2.267 milljónir, sem jafngildir 9% heildartekna. Skuldaviðmið sveitarfélagsins er áætlað 109% í árslok 2027.

Gert er ráð fyrir 270 milljóna króna hagræðingu, sem nemur um 1,2% rekstrarútgjalda. Ráðgjafarfyrirtækið ARCUR vinnur nú að heildarúttekt á fjárhag og rekstri bæjarins og verða niðurstöðurnar nýttar við mótun frekari aðgerða á fyrsta ársfjórðungi næsta árs.

Bæjarstjóri segir þegar hafa verið gripið til kostnaðaraðgerða en fjárhagsstaðan kalli á frekari hagræðingu. Markmiðið sé að auka skilvirkni án þess að skerða þjónustu við íbúa.

Fasteignaskattur lækkar en gjaldskrár hækka um 2,5%

Útsvar í Mosfellsbæ verður áfram 14,97% en álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækkar úr 0,190% í 0,187%.

Þrátt fyrir lægra álagningarhlutfall er gert ráð fyrir að fasteignaskattur hækki að meðaltali um 2,1% vegna hækkunar fasteignamats. Hefði hlutfallið haldist óbreytt hefði hækkunin numið um 3,7%.

Almennar gjaldskrár sveitarfélagsins hækka um 2,5%, í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Nýr leikskóli fyrirhugaður árið 2029

Um 75% útgjalda Mosfellsbæjar renna til leikskóla, grunnskóla, frístundastarfs og velferðarþjónustu.

Áfram verður 12 mánaða börnum tryggð leikskólavistun að hausti og gert er ráð fyrir að leikskólagjöld verði með þeim lægstu á höfuðborgarsvæðinu.

Á næsta ári hefst hönnun nýs leikskóla miðsvæðis í bænum, ásamt tengingu hans við húsnæði Hlíðar. Stefnt er að því að leikskólinn verði tilbúinn haustið 2029.

Einnig verður ráðist í endurbætur á grunnskólahúsnæði og skólalóðum, meðal annars með bættri loftræsingu og áframhaldandi uppsetningu LED-lýsingar.

Í fjárhagsáætluninni er jafnframt gert ráð fyrir áframhaldandi sálfræði- og ráðgjafarþjónustu fyrir börn og fjölskyldur, meðal annars með opnum viðtalstímum sálfræðinga í skólum, foreldralínu, Foreldraskóla og ráðgjöf Bergsins headspace.

Nýbygging við Varmá og lengri opnun Lágafellslaugar

Framkvæmdir hefjast á nýrri þjónustu- og aðkomubyggingu við íþróttasvæðið að Varmá. Jafnframt verður núverandi húsnæði aðlagað nýbyggingunni og unnið að frekari greiningu á fyrirhugaðri stúkubyggingu.

Áfram er gert ráð fyrir að Lágafellslaug verði opin tveimur klukkustundum lengur um helgar. Lengri opnun var tekin upp í tilraunaskyni og hefur samkvæmt upplýsingum bæjarins mælst vel fyrir meðal íbúa.

Endurbætur á Hlégarði og uppbygging í Álafosskvos

Mosfellsbær hyggst halda áfram uppbyggingu í Álafosskvos með það að markmiði að efla svæðið sem menningarreit og áfangastað.

Meðal fyrirhugaðra verkefna eru stuðningur við ullarsögusýningu, bygging útsýnispalls við Álafoss og Varmá og endurbætur á vatnstankinum með það fyrir augum að nýta hann fyrir lista- og menningarstarfsemi.

Á árinu 2027 verður einnig ráðist í viðgerðir á Hlégarði, meðal annars á þaki, klæðningu og bílastæði. Þá eru fyrirhugaðar endurbætur á þriðju hæð Brúarlands, þar sem fram fer félagsstarf eldri borgara.

Fjárfestingar nema tæpum 4,4 milljörðum króna

Heildarfjárfestingar Mosfellsbæjar eru áætlaðar 4.396 milljónir króna á næsta ári.

Meðal stærstu gatnaframkvæmda verða endurbætur í neðri götu Byggðarholts og Akurholts. Þá hefst undirbúningur og hönnun Þingvallavegar um Mosfellsdal í samstarfi við Vegagerðina.

Áhersla verður einnig lögð á endurnýjun innviða í eldri hverfum og stafræna þróun þjónustu bæjarins, meðal annars með styrkingu upplýsingatæknikerfa og hagnýtingu gervigreindar.

Gert er ráð fyrir áframhaldandi fjölgun íbúa og að íbúar Mosfellsbæjar verði orðnir tæplega 14.000 á árinu 2027.

Fjárhagsáætlunin verður tekin til síðari umræðu í bæjarstjórn 9. desember.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila