MR fagnar 180 ára afmæli – Casa Christi tekið aftur í notkun til kennslu

Menntaskólinn í Reykjavík fagnar 180 ára afmæli sínu með hátíðarathöfn við aðalinngang skólans á morgun, fimmtudag, klukkan 13. Við athöfnina verður jafnframt undirrituð viljayfirlýsing um endurbætur á hinu fornfræga húsi Casa Christi með það að markmiði að þar geti kennsla hafist að nýju haustið 2030.

Forseti Íslands, mennta- og barnamálaráðherra, rektor MR, Guðni Th. Jóhannesson og nemendur skólans verða með framsögu við athöfnina.

Casa Christi endurbætt

Mennta- og barnamálaráðherra og rektor MR munu við athöfnina undirrita viljayfirlýsingu um endurbætur á Casa Christi.

Stefnt er að því að gera húsið aftur hæft til kennslu og taka það í notkun haustið 2030.

Casa Christi er eitt af sögufrægum húsum Menntaskólans í Reykjavík og fyrirhugaðar framkvæmdir tengjast þannig bæði framtíðarstarfi skólans og varðveislu húsnæðis hans.

Hátíðarathöfnin hefst við aðalinngang Menntaskólans í Reykjavík klukkan 13 á morgun.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila