Mun fleiri sækja um hlutdeildarlán en fá úthlutað

Eftirspurn eftir hlutdeildarlánum var nær þreföld á við það fjármagn sem var til úthlutunar í maí. Þetta kemur fram í tilkynningu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Þetta er þriðji mánuðurinn í röð sem grípa þarf til útdráttar meðal umsækjenda sem uppfylla öll skilyrði.

Alls voru 78 umsóknir til yfirferðar hjá HMS, þar af 36 umsóknir sem bárust í fyrri mánuðum ársins. Í flestum tilvikum lá fyrir samþykkt kauptilboð í fasteign sem uppfyllti skilyrði hlutdeildarlána og njóta slíkar umsóknir forgangs.

Sótt um lán fyrir 1.300 milljónir króna

Hlutdeildarlán eru ætluð fyrstu kaupendum og þeim sem ekki hafa átt fasteign síðustu 5 ár, að uppfylltum ákveðnum tekjuskilyrðum. Markmið lánanna er að auðvelda fólki að komast inn á húsnæðismarkaðinn með því að brúa bilið við fasteignakaup.

Líkt og í fyrri úthlutunum ársins voru 458 milljónir króna til ráðstöfunar í maí. Hins vegar var sótt um hlutdeildarlán fyrir um 1.300 milljónir króna.

Eftir yfirferð umsókna kom í ljós að 63 umsóknir uppfylltu öll skilyrði til úthlutunar og nam heildarfjárhæð þeirra um 985 milljónum króna.

33 umsóknir dregnar út

Vegna þess að umsótt fjárhæð fór langt fram úr því fjármagni sem var til staðar þurfti að velja af handahófi úr hópi umsækjenda sem uppfylltu öll skilyrði.

Alls voru 33 umsóknir dregnar út af fulltrúa Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við forgangsreglur úthlutunar. Heildarfjárhæð úthlutaðra lána nam um 530 milljónum króna.

Samtals fengu 30 umsóknir ekki úthlutun þrátt fyrir að uppfylla öll skilyrði. Þeim umsækjendum hefur verið boðið að halda umsóknum sínum opnum og færa þær yfir í úthlutun í júní.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila