
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðbjörn Guðbjörnsson, stjórnsýslufræðing og óperusöngvara, í síðdegisútvarpinu í dag, um ræðu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hjá Sameinuðu þjóðunum og þá staðreynd að mynd hennar og orð voru í kjölfarið notuð á auglýsingaskiltum í Teheran. Guðbjörn, sem styður bæði Þorgerði Katrínu og Viðreisn, sagði ræðuna hafa gengið allt of langt. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Ósáttur við orðbragðið
Guðbjörn sagði sig hafa stutt Þorgerði Katrínu eindregið í ESB-málinu og talið hana hafa staðið sig mjög vel þar. Afstaða hans til ræðunnar hjá Sameinuðu þjóðunum væri hins vegar allt önnur.
Hann sagði gagnrýni á Benjamin Netanyahu, Ísrael og aðgerðir Ísraelshers fullkomlega eiga rétt á sér en orðbragðið og hversu djúpt utanríkisráðherrann tók í árinni hefðu gengið of langt.
Birting myndar Þorgerðar Katrínar og orða hennar á skiltum í Teheran væri að hans mati skýrt merki um að íslensk stjórnvöld þyrftu að hugsa vandlega um hvernig yfirlýsingar þeirra væru nýttar á alþjóðavettvangi. Nú væri staðan sú að Þorgerður Katrín sé eini íslenski ráðherran í sögu landsins sem mynd hafi verið birt á skiltum í Íran.
Spyr hvort ríkisstjórnin hafi staðið að baki afstöðunni
Guðbjörn lagði áherslu á að utanríkisstefna Íslands væri ekki einkamál utanríkisráðherra.
Þegar tekin væri jafn hörð afstaða í stórum alþjóðlegum deilum þyrfti að liggja fyrir hvort ríkisstjórnin, þingmeirihlutinn og utanríkismálanefnd Alþingis stæðu að baki henni.
Hann sagði málið einnig snerta beina hagsmuni Íslands. Þar væru undir samskipti við Bandaríkin, varnarmál og viðskiptahagsmunir íslenskra fyrirtækja.
Klerkastjórnin þekkt fyrir að drepa hinsegin fólk
Arnþrúður vakti athygli á því að Þorgerður Katrín hefði lagt mikla áherslu á mannréttindi, stöðu kvenna og réttindi hinsegin fólks en væri nú hampað af klerkastjórninni í Íran sem væru þekkt fyrir að lífláta hinsegin fólk og brjóta á mannréttindum kvenna.
Guðbjörn sagði sama mælikvarða þurfa að gilda gagnvart öllum ríkjum. Trúverðugleiki Íslands í alþjóðamálum byggðist á því að stjórnvöld væru sjálfum sér samkvæm.
Hann gagnrýndi harðlega mannréttindastöðu í Íran og sagði það fara illa saman við frjálslynd og lýðræðisleg sjónarmið að íslenskur ráðherra yrði notaður í áróðri þar.
Ísland hefur fá tromp í utanríkismálum
Guðbjörn sagði Ísland lítið ríki sem hefði takmörkuð tækifæri til að hafa áhrif í alþjóðamálum. Því þyrfti að fara varlega með þau sambönd og þann stuðning sem landið gæti þurft á að halda.
Hann sagði Ísland þurfa að geta treyst á Bandaríkin og aðra bandamenn þegar á reyndi og taldi ekki þjóna íslenskum hagsmunum að eyða pólitísku svigrúmi landsins með óþarflega hörðu orðalagi.
Utanríkismál væru alvarlegur málaflokkur þar sem orð ráðherra gætu haft afleiðingar langt út fyrir íslenska stjórnmálaumræðu. Guðbjörn sagði því diplómatíu, yfirvegun og skýra hagsmunagæslu skipta sérstaklega miklu máli.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
