
Hrafn Margeirsson segir dóttur sína hafa látist eftir alvarleg veikindi sem hann rekur til Covid-19 Pfizer-sprauta sem hún fékk árið 2021. Hann lýsti reynslu fjölskyldunnar á fundi sem fram fór fyrir skömmu þar sem fjallað var um skaða af Covid-bólusetningum og gagnrýndi Hrafn á fundinum stjórnvöld, heilbrigðisyfirvöld og fjölmiðla harðlega fyrir viðbrögð þeirra á faraldratímanum. Myndband af frásögn Hrafns má sjá neðst í fréttinni.
Hrafn sagðist sjálfur aldrei hafa farið í bólusetningu en fylgst grannt með upplýsingafundum almannavarna og umfjöllun fjölmiðla á meðan faraldurinn stóð yfir. Hann sagði sig fljótlega hafa fengið á tilfinninguna að upplýsingagjöfin væri stýrð og að fréttamenn fengju ekki raunverulegt svigrúm til að spyrja gagnrýninna spurninga. Þá gagnrýndi hann sérstaklega hvernig bólusetningarnar hefðu verið kynntar almenningi sem öruggar og farsælar.
Heilsa dótturinnar hrundi eftir bólusetningu
Að sögn Hrafns var dóttir hans hraust íþróttakona sem keppti fyrir Íslands hönd áður en heilsufarsvandamál fóru að gera vart við sig skömmu eftir seinni sprautuna. Hann sagði fyrst hafa komið fram breytingar á tíðahring, síðar miklir bakverkir, kvíði, langvarandi meltingarvandamál og hratt þyngdartap. Hann gagnrýndi heilbrigðiskerfið fyrir að hafa ekki brugðist fyrr við einkennunum og sagði blóðrannsóknir ekki hafa verið framkvæmdar fyrr en mjög seint í ferlinu.
Þegar niðurstöður rannsókna lágu fyrir sagði Hrafn að í ljós hefði komið mjög ágengt krabbamein sem hefði dreift sér víða um líkamann. Hann sagðist síðar hafa rekist á umfjöllun í norskum miðli um svokallað „turbo cancer“ sem tengt væri Covid-sprautum og að lýsingarnar þar hefðu átt nákvæmlega við um veikindi dóttur hans. Hún lést síðan á Landspítalanum 12. nóvember 2024 eftir erfið veikindi.
Gagnrýnir samninga ríkisins við lyfjafyrirtæki
Í ræðu sinni fjallaði Hrafn einnig um samninga íslenska ríkisins við lyfjaframleiðendur vegna Covid-bóluefna. Hann sagði framleiðendur hafa losað sig undan allri ábyrgð á mögulegum skaða af völdum bóluefnanna á meðan íslenska ríkið hefði tekið ábyrgðina á sig. Hann benti á að almenningur, fjölmiðlar og jafnvel Alþingi hafi ekki fengið að sjá samningana og þeir hefðu verið sem „algjört hernaðarleyndarmál“.
Hrafn sagði jafnframt að þeir sem teldu sig hafa orðið fyrir skaða vegna bólusetninga ættu mjög erfitt með að fá mál sín viðurkennd eða fá bætur greiddar. Þá gagnrýndi hann fyrrverandi landlækni, Ölmu Möller, fyrir að hafna því að aukning krabbameina og umframdauða gæti tengst Covid-sprautunum.
Samfélagið brást gagnrýnum röddum
Hrafn sagði að samfélagið hefði brugðist með því að bæla niður gagnrýni og útiloka umræðu um mögulegar afleiðingar bólusetninganna. Hann sagði reynslu fjölskyldunnar hafa gjörbreytt sýn sinni á stjórnvöld, fjölmiðla og heilbrigðiskerfið og að margir sem hefðu upplifað sambærilega hluti óttuðust enn að stíga fram opinberlega.
