Nanna: Ekki verið að kjósa um vexti, verðbólgu eða húsnæðisverð

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, þingmann Miðflokksins í síðdegisútvarpinu í dag, um hvað felist í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Evrópusambandið. Nanna lagði áherslu á að ekki væri verið að kjósa um vexti, verðbólgu, húsnæðisverð eða matvælaverð heldur hvort halda ætti aðildarferlinu áfram. Þessi efnahagsmál væru ekki samningsefni í aðildarviðræðum þótt þau hefðu verið fyrirferðarmikil í umræðunni. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Efnahagsleg kjör ekki samningsefni

Í umræðunni hefur ESB-málið meðal annars verið tengt við lægri vexti, ódýrara húsnæði, betri lánskjör og lægra matvælaverð. Nanna taldi hættu á að þannig væri skapaður sá skilningur að þessi atriði væru hluti af því sem semja ætti um við ESB.

Arnþrúður benti á að þessi skilaboð væru áberandi þegar talað væri til þjóðarinnar og sérstaklega ungs fólks. Nanna tók undir að staðan væri erfið fyrir ungt fólk á Íslandi en benti jafnframt á að jafnaldrar þess innan ESB ættu einnig víða erfitt með að komast inn á húsnæðismarkað.

Það er ekki verið að kjósa um evruna

Nanna sagði að það væri ekki heldur verið að kjósa um evruna og möguleg upptaka evru væri annað og mun seinna ferli. Áður þyrfti Ísland að uppfylla skilyrði og ná tökum á eigin efnahagsmálum. Því væri ekki hægt að líta á framhald aðildarviðræðna sem skammtímalausn á háum vöxtum eða verðbólgu.

Nanna aðgreindi jafnframt gjaldmiðlamálin frá ESB-aðildinni og benti á að ríki hefðu tekið upp annan gjaldmiðil án þess að ganga í Evrópusambandið.

Efnahagsvandinn þarf að leysast hér heima

Í þessu samhengi rifjaði Arnþrúður upp ummæli Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um að ESB myndi ekki leysa efnahagsvanda Íslands. Nanna tók undir þá nálgun og taldi Íslendinga þurfa sjálfa að ná niður verðbólgu og vöxtum.

Hún gagnrýndi jafnframt að efnahagslegur ávinningur væri notaður í umræðunni til stuðnings áframhaldandi ESB-ferli þegar ekki yrði samið um þessi atriði við samningaborðið.

Aðildarferlið sé raunverulega undir

Kjarni kosninganna væri að mati Nönnu hvort Ísland ætti að halda áfram aðildarferlinu að Evrópusambandinu. Hún sagði aðildarsamning liggja fyrir í megindráttum hvað varðaði uppbyggingu og málaflokka. Aðildarferlið snerist um hvernig og á hve löngum tíma Ísland aðlagaðist reglum Evrópusambandsins.

Því ætti umræðan að snúast um aðildina og afleiðingar hennar en ekki fyrirheit um breytingar á vöxtum, verðbólgu, húsnæðisverði eða matvælaverði.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila