Nauðsynlegt að stofna kærunefnd vegna galla í nýbyggingum

Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Breka Karlsson formann Neytendasamtakanna og Hildi Ýr Viðarsdóttur lektor við lagadeild Háskóla Íslands og formann Húseigendafélagsins í þættinum Skipulagsmál, um réttarstöðu fólks sem lendir í gallamálum vegna fasteigna. Þau telja þörf á einfaldari og ódýrari úrlausnarleið en dómstólum og nefndu sérstaka kærunefnd eða úrskurðarnefnd vegna galla í nýbyggingum og fasteignakaupa. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Fólk á ekki 5 til 10 milljónir í málarekstur

Breki sagði einstaklinga yfirleitt ekki eiga 5 til 10 milljónir króna aukalega til að verja í málarekstur. Málskostnaðartryggingar geti hjálpað en þær séu oft aðeins upp á 2 til 3 milljónir og því geti fólk setið eftir með verulegan kostnað.

Hann benti á Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa sem dæmi um ódýrari úrlausnarleið. Þótt fyrirtækjum sé ekki alltaf skylt að fylgja niðurstöðum nefndarinnar sé það gert í um 80 til 90% mála. Breki taldi sambærilegt úrræði þurfa vegna nýbygginga.

Hugmyndin kynnt ráðuneytinu fyrir árum

Hildur sagði sig hafa kynnt dómsmálaráðuneytinu hugmynd um kærunefnd fasteignakaupa fyrir 7 eða 8 árum. Þar gætu setið bæði lögfræðingar og byggingarfróðir sérfræðingar svo ekki þyrfti í öllum málum að fara í dýrar matsgerðir og dómsmál.

Hugmyndin komst ekki lengra en Hildur taldi enn þjóðhagslega hagkvæmt að fækka dómsmálum með einfaldari úrlausnarleið.

Valdaójafnvægi milli neytenda og fyrirtækja

Breki sagði fasteign oft vera stærstu fjárfestingu fólks á ævinni og að því væri óeðlilegt að eina raunhæfa leiðin í alvarlegum gallamálum gæti verið margra ára dómsmál.

Hann tengdi þetta við valdaójafnvægi neytenda og stórra fyrirtækja sem geti haft fjölda lögfræðinga á sínum snærum. Kærunefnd eða úrskurðarnefnd gæti að hans mati tekið slík mál fyrir með skjótari og ódýrari hætti.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila