
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Pál Vilhjálmsson, blaðamann og bloggara í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu um samskipti Íslands og Bandaríkjanna, eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Páll sagði niðurstöðuna skapa úrvalstækifæri fyrir Ísland til að hefja fríverslunarviðræður við Bandaríkin og efla samstarf ríkjanna á sviði orku, tækni, viðskipta, varna og öryggismála. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Hlýjar kveðjur frá Bandaríkjunum
Pétur vakti athygli á kveðju sem barst frá bandaríska utanríkisráðuneytinu sama dag og úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar lágu fyrir. Þar var lögð áhersla á aukin samskipti ríkjanna á nokkrum mikilvægum sviðum.
Skilaboðin frá Bandaríkjunum væru skýr og minntist þá Páll á kveðjur sem Íslendingum bárust frá Bandaríkjunum á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Hann sagði þetta sýna vilja bandarískra stjórnvalda til að viðhalda nánum tengslum við Ísland.
Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar breyti jafnframt stöðunni gagnvart mögulegum viðskiptasamningi. Ísland geti nú skoðað fríverslunarviðræður við Bandaríkin en Páll sagði slíkt ekki hafa verið mögulegt með sama hætti ef landið væri komið á leið inn í Evrópusambandið.
Bandaríkin lykilríki í öryggismálum Íslands
Páll lagði einnig mikla áherslu á varnar- og öryggishagsmuni ríkjanna. Bandaríkin hafa um áratugaskeið gegnt lykilhlutverki í vörnum Íslands og Páll sagði stöðu landsins á Norður-Atlantshafi gera það sérstaklega mikilvægt í bandarískri öryggisstefnu.
Hann rifjaði upp að Ísland hefði á tímum kalda stríðsins verið kallað ósökkvandi flugmóðurskip á Norður-Atlantshafi og sagði þá lýsingu enn eiga við þegar horft væri til landfræðilegrar stöðu Íslands. Grænland, Ísland, Bretland og hafsvæðið þar á milli mynda mikilvægt öryggissvæði fyrir Bandaríkin. Uppbygging bandarískrar hernaðaraðstöðu á Grænlandi auki enn mikilvægi þess að náið samstarf sé milli Íslands og Bandaríkjanna.
Tækifærið þarf að nýta
Páll sagði hagvöxt í Bandaríkjunum og stöðu bandaríska hagkerfisins skapa frekari möguleika fyrir Ísland. Þótt skuldastaða Bandaríkjanna væri mikil væri efnahagsstaðan að mörgu leyti betri en hjá stórveldum Evrópu. Hann telur því rétt að íslensk stjórnvöld nýti breytta stöðu eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna til að kanna hvort hægt sé að færa efnahags- og viðskiptasamband ríkjanna á nýtt stig.
Fríverslunarviðræður við Bandaríkin gætu orðið hluti af þeirri vegferð samhliða nánara samstarfi á sviði orku, tækni, viðskipta, varna og öryggismála. Páll kallaði stöðuna úrvalstækifæri fyrir Ísland.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
