
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu við Guðrúnu Kristínu Ívarsdóttur, miðil í síðdegisútvarpinu í dag,um þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið og framtíð ESB. Guðrún spáir því að nei verði niðurstaðan með 15 til 17% mun og ríkisstjórnarsamstarfið taki enda í kjölfarið. Hún sér jafnframt fyrir sér að Evrópusambandið líði undir lok í núverandi mynd og evran hverfi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Nei fær 15% til 17% fleiri atkvæði
Guðrún sagðist hafa skoðað stöðuna um morguninn og fengið mjög eindregna niðurstöðu um sigur nei-hliðarinnar. Hún nefndi fyrst 17 til 18% mun en þegar Arnþrúður bað hana að ítreka töluna sagði hún niðurstöðuna verða 15% til 17% mun.
Hún tók fram að hún hefði ekki reiknað út tölurnar heldur fengið þessa prósentutölu upp þegar hún skoðaði málið. Hún spáði jafnframt að niðurstaðan kæmi fljótt fram þegar fyrstu tölur yrðu birtar.
Hún taldi utankjörfundaratkvæði og atkvæði eldra fólks eiga eftir að sýna sterkan stuðning við nei. Landsbyggðarfólk og bændur myndu einnig fjölmenna á kjörstað. Málið væri svo stórt að fólk sem annars væri ekki endilega duglegt að kjósa myndi láta sig það varða.
Stjórnarsamstarfið tekur enda
Guðrún spáði pólitískum afleiðingum strax í kjölfar niðurstöðunnar. Hún sagðist telja að ríkisstjórnin myndi segja af sér og þegar hún var spurð um hvernig Kristrún Frostadóttir myndi bregðast við sagði Guðrún að niðurstaðan yrði einfaldlega endalok stjórnarsamstarfsins.
Hún sagðist finna að eitthvað yrði að breytast á Alþingi. Stjórnarsamstarfið stæði ekki á traustum grunni og uppgjör væri fram undan.
Guðrún taldi jafnframt að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar myndi ekki binda enda á átökin um ESB. Hún sagði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sækja málið mjög fast og spáði því að reynt yrði að halda því áfram þótt þjóðin segði nei. Í þættinum kom fram að forsætisráðherra hefði sagt að niðurstöðu þjóðarinnar yrði treyst og hún látin standa. Guðrún svaraði að þá yrði einfaldlega að sjá hvað gerðist en hún teldi áfram verða reynt að koma málinu áleiðis.
Deilurnar komnar inn á heimilin
Guðrún sagði ESB-málið þegar búið að kljúfa þjóðina. Hún hefði sjálf orðið vör við deilur innan fjölskyldna vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Hún sagðist reyna að sætta fólk og lagði áherslu á að fólk yrði að fá að hafa ólíkar skoðanir, hvort sem það vildi halda aðildarviðræðum áfram eða ekki.
Evrópusambandið líður undir lok
Spá Guðrúnar náði einnig lengra fram í tímann. Hún sagðist áður hafa séð fyrir sér að Evrópusambandið myndi líða undir lok og ítrekaði þá sýn. Í stað núverandi sambands kæmi annars konar samstarf eða bandalag Evrópuþjóða þar sem hvert ríki stæði sjálfstætt.
Evran hverfur sem gjaldmiðill
Hún sér fyrir sér að ríkin taki aftur upp eigin gjaldmiðla og að evran hverfi. Guðrún tók fram að hún væri ekki að spá þessu á næstu mánuðum heldur til lengri framtíðar. Evrópuþjóðir myndu áfram eiga með sér samstarf en ekki innan eins sambands sem stjórnaði öllu.
Guðrún sagði jafnframt að ef þessi þróun gengi eftir myndi hvert ríki þurfa að standa undir eigin skuldum. Þá kæmu skuldir einstakra ríkja upp á yfirborðið og betur sæist hvað hefði átt sér stað í ríkjum sem glímt hefðu við mikinn fjárhagsvanda.
Miklar breytingar í Frakklandi og Þýskalandi
Einnig var Guðrún spurð út í stöðu Marine Le Pen í Frakklandi og Alice Weidel og AfD í Þýskalandi. Guðrún svaraði að eins og málin birtust henni gæti Marine Le Pen orðið forseti Frakklands. Hún spáði miklum breytingum bæði í Frakklandi og Þýskalandi sem hefðu jafnframt áhrif á framtíð Evrópusambandsins.
Áform ESB um Grænland hefur verið lengi í undirbúningi
Um áform ESB gagnvart Grænlandi sagði Guðrún að þau hefðu verið undirbúin lengi og ákveðin fyrir fram. Hún taldi þó ekki að áformin myndu takast á Grænlandi og hafnaði einnig því að Noregur væri á leið inn í Evrópusambandið.
Guðrún lýsti umræðunni sem áróðri og sagði þróunina skipulagða. Hún lauk spánni með því að ítreka að nei myndi vinna þjóðaratkvæðagreiðsluna með 15% til 17 % mun og að það sæist fljótt þegar fyrstu tölur kæmu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
