
Fána með með skilaboðunum „Nei við ESB“ var fyrir um viku stolið af fánastöng við Aðalgötu á Siglufirði. Málið hefur verið kært til lögreglu og er nú til rannsóknar hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Vel mögulegt að upplýsa málið með því að skoða upptökur
Valgeir Tómas Sigurðsson eigandi fánans greinir frá atvikinu á Facebook segist vonast til að fánanum verði skilað. Hann telur að vel mögulegt sé að upplýsa málið með því að fara yfir upptökur úr eftirlitsmyndavélum fyrirtækja í nágrenninu.
Fáninn hefur vakið athygli í bænum
Í samtali við fréttavef Útvarp Sögu segir Valgeir að málið sé fyrst og fremst leiðinlegt enda hafi fáninn vakið athygli fólks sem á leið um bæinn og er fáninn jafnan myndaður af bæjarbúum og aðkomufólki. Í færslunni segir Valgeir að þjófnaðurinn varpi að hans mati ákveðinn skugga á kosningabaráttuna fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Skorar á já-sinna að fordæma þjófnaðinn
Hann telur að þeir sem hafi stolið fánanum séu líklega aðilar sem aðhyllast þá skoðun að greiða eigi já atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Í því samhengi telur Valgeir að rétt væri að forysta samtakanna SJÁ eða JÁ til að SJÁ fordæmi þjófnaðinn opinberlega og hvetji þá sem tóku fánann til að skila honum til að stuðla að málefnalegri og friðsamlegri kosningabaráttu.
