Nístandi sorg í sjávarbyggðunum á Norðausturlandi eftir að Jökull sökk

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu við Árna Loga Sigurbjörnsson, íbúa í Öxarfirði í N-þingeyjarsýslu, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu í dag, um viðbrögð íbúa á Norðausturlandi við sjóslysinu þegar Jökull ÞH 299 sökk undan Langanesi. 3 skipverjar fórust en 14 var bjargað. Árni Logi sagði samfélagið lamað af sorg, enda hefðu margir íbúar Raufarhafnar, Húsavíkur og nágrannabyggðarlaga þekkt skipverjana eða starfað með þeim. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Fánar í hálfa stöng og samfélagið lamað af sorg

Árni Logi sagði fólk í byggðarlögunum hafa orðið fyrir miklu áfalli þegar ljóst varð hversu alvarlegt slysið var. Margir skipverjanna hefðu starfað á Raufarhöfn eða verið á skipum útgerðarfyrirtækisins GPG frá Húsavík og því væru tengslin við byggðarlögin sterk.

Hann lýsti því hvernig fólk hefði verið slegið yfir fréttunum og fánar víða verið dregnir í hálfa stöng. Í litlum sjávarbyggðum þar sem flestir þekktust hefði missir 3ja sjómanna, áhrif langt út fyrir nánustu fjölskyldur þeirra.

Arnþrúður rifjaði upp fyrri sjóslys á svæðinu og hversu djúp spor slíkir atburðir skildu eftir sig. Hún minnti jafnframt á minningar- og bænastund í Húsavíkurkirkju þar sem fólk gæti komið saman vegna slyssins.

Óvissan var mikil meðan björgunaraðgerðir stóðu yfir

Árni Logi heyrði fyrst af útkalli björgunarsveita síðdegis í gær. Þá lágu fyrir upplýsingar um skip í neyð en ekki hvaða skip ætti í hlut.

Það var ekki fyrr en síðar um kvöldið sem hann frétti að Jökull hefði sokkið eða væri að sökkva. Hann fylgdist með fréttum fram eftir kvöldi og heyrði um miðnætti að tekist hefði að bjarga skipverjum um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Hann sagði óvissuna hafa verið erfiða fyrir íbúa svæðisins, ekki síst þar sem fjölmargir þekktu til útgerðarinnar og þeirra sem störfuðu um borð.

Sjóslys hafa djúp áhrif á fámenn samfélög

Árni Logi hefur sjálfur reynslu af sjómennsku og björgunarstörfum. Hann sagði aðstæður á hafinu undan Langanesi geta verið mjög erfiðar og að sjólag breyst hratt þegar vindur, stórar öldur og myrkur færu saman.

Hann tók þó skýrt fram að ekki væri vitað hvað hefði valdið því að Jökull sökk. Ýmsar hugmyndir hefðu komið fram um hugsanlegan brotsjó eða að skipið hefði lent í erfiðleikum við veiðar en rannsókn þyrfti að leiða í ljós hvað raunverulega gerðist. Arnþrúður spurði hvort þeir hefðu verið á grálúðuveiðum og sagði Árni svo vera. Grálúða væri botnfiskur og veidd í net. Hann hafi fyrst hugsað að net hefðu farið í skrúfuna á skipin en það liggur ekkert fyrir um það ennþá.

Arnþrúður benti á að slysið minnti á þá tíma þegar mannskæðir sjóskaðar voru tíðari við Ísland. Þrátt fyrir betri skip og aukinn öryggisbúnað gætu alvarleg slys enn orðið með litlum fyrirvara.

Bænastund í Húsavíkurkirkju vegna slyssins

Íbúar á svæðinu komu saman í sorg vegna þeirra þriggja sem fórust. Árni Logi sagði áfallið ná til fólks af ólíkum uppruna, enda starfaði bæði íslenskt og erlent verkafólk hjá útgerðinni og í tengdri starfsemi.

Arnþrúður og Pétur sendu aðstandendum hinna látnu samúðarkveðjur og minntu á bænastundina í Húsavíkurkirkju kl. 17:00 í dag.

Árni Logi sagði fólk enn dofið eftir atburðina. Í fámennum byggðarlögum þar sem sjómennska væri stór hluti atvinnulífsins væri missir skipverjanna sameiginlegt áfall fyrir samfélagið.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila