
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Njál Trausta Friðbertsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins og varaformann Íslandsdeildar NATO-þingsins, í síðdegisútvarpinu, um þær ógnir sem Ísland stendur frammi fyrir í breyttu öryggisumhverfi. Njáll hefur ekki sérstakar áhyggjur af því að ráðist verði inn í Ísland en telur fjölþátta hernað, dróna og möguleg skemmdarverk mun raunhæfari viðfangsefni. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Drónar hafa gjörbreytt hernaði
Njáll hefur um árabil fylgst með þróun nýrrar hernaðartækni og vann meðal annars að skýrslu fyrir NATO-þingið árið 2022 um framtíðarhernað og dróna.
Hann sagði þróunina síðan hafa orðið mun hraðari en hægt hefði verið að gera ráð fyrir. Drónar væru ódýrir í samanburði við mörg hefðbundin vopn en gætu haft gríðarleg áhrif á vígvellinum.
Njáll nefndi Úkraínustríðið sem dæmi og sagði að á fyrsta ári þess hefðu um 10% dauðsfalla hermanna og almennra borgara tengst drónum en hlutfallið væri nú komið í 80–90%. Hernaðurinn hefði því á örfáum árum þróast í það sem hann lýsti sem drónahernaði.
Dýr vopn notuð gegn ódýrum drónum
Ein af áskorununum er að mjög ódýrum drónum sé oft mætt með rándýrum varnarkerfum og flaugum.
Njáll sagði því mikla vinnu fara fram við að þróa ódýrari leiðir til að verjast drónum. Þróunin sýni hversu hratt forsendur í varnar- og öryggismálum geti breyst.
Hann benti einnig á að hefðbundin og ný hernaðartækni fari nú saman. Í Úkraínu sjáist annars vegar skotgrafahernaður sem minni á fyrri heimsstyrjöldina og hins vegar drónar sem hafi bætt alveg nýrri vídd við átökin.
Ógnin nær einnig til skemmdarverka
Njáll sagði drónatæknina ekki aðeins skipta máli í hefðbundnum hernaði. Hún gæti einnig orðið hluti af fjölþátta ógn gagnvart almennum samfélögum.
Hann nefndi möguleikann á að skemmdarverkamenn eða hryðjuverkamenn kæmust yfir dróna og nýttu þá til árása eða skemmdarverka.
Varnir samfélagsins hefðu ekki alls staðar náð að þróast jafnhratt og tæknin. Drónar hefðu komið fram og þróast svo hratt að stjórnvöld og öryggiskerfi væru enn að laga sig að nýjum veruleika.
Mikilvægt að fræða þjóðina en ekki hræða
Njáll lagði jafnframt áherslu á að umræðan um öryggismál ætti ekki að byggjast á því að hræða almenning.
Hann vill frekar að almenningur fái upplýsingar um hvernig ógnir hafa breyst og hvaða áhætta sé raunverulega til staðar. Beinar hernaðarinnrásir séu aðeins einn hluti myndarinnar en fjölþátta hernaður, drónar og ný tækni hafi gert öryggisumhverfið mun flóknara en áður.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
