Nöfn mannanna sem fórust þegar Jökull sökk

Þeir sem fórust þegar Jökull ÞH 299 sökk austur af landinu á miðvikudag hétu, Eggert Ellertsson, 45 ára, búsettur í Reykjavík, Aðalsteinn Steinþórsson, 59 ára, búsettur á Húsavík, og Jacek Belina frá Ustka í Póllandi, fæddur árið 1974 og því á 52. aldursári. Alls voru 17 skipverjar um borð í skipinu þegar slysið varð og tókst að bjarga 14 þeirra. Útvarp Saga sendir fjölskyldum, ættingjum og vinum hinna látnu og öllum þeim sem eiga um sárt að binda vegna slyssins dýpstu samúðarkveðjur.

Skipið sökk eftir að mikill leki kom að því

Slysið varð um 60 sjómílur austur af landinu síðdegis á miðvikudag. Skipstjóri Jökuls hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um klukkan 17 og tilkynnti að mikill leki væri kominn að skipinu. Skömmu síðar þurfti áhöfnin að yfirgefa skipið.

Skipverjarnir höfðu klæðst björgunargöllum og tókst þeim að halda hópinn í sjónum þrátt fyrir afar erfiðar aðstæður. Björgunaraðgerðir hófust þegar neyðarboðið barst og voru þyrla og eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar sendar á vettvang ásamt fjölda skipa sem héldu til aðstoðar.

Fjórtán skipverjum bjargað

Skipverjarnir voru rúmar fjórar klukkustundir í sjónum áður en björgun lauk. Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar náði að hífa alla 17 um borð en þremur þeirra varð ekki bjargað.

Aðgerðirnar fóru fram í myrkri og slæmu veðri og reyndu verulega á björgunarfólk. Þyrlan þurfti meðal annars að fljúga suður fyrir land vegna veðurs og taka eldsneyti á Höfn í Hornafirði áður en hún komst á slysstað.

Slysið er eitt mannskæðasta sjóslys við Íslandsstrendur á síðustu áratugum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila