Norðurlönd og Eystrasaltsríki vilja ekki vera háð stórum tæknifyrirtækjum

Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin hafa samþykkt sameiginlega yfirlýsingu um að efla stafrænt sjálfstæði ríkjanna. Ríkin telja sig orðin of háð fáeinum stórum tæknifyrirtækjum og vilja styrkja eigin stafræna innviði, auka öryggi sæstrengja og efla samstarf um kaup á skýjaþjónustu. Samkomulagið var gert á fundi ráðherra stafrænna mála í Kaupmannahöfn þar sem Ísland átti fulltrúa.

Vilja draga úr því hversu háð ríkin eru stórum tæknifyrirtækjum

Í sameiginlegri yfirlýsingu ríkjanna kemur fram að þótt Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin hafi verið framarlega í þróun og innleiðingu stafrænnar tækni hafi aukin samþjöppun á tæknimarkaði leitt til þess að ríkin reiði sig í vaxandi mæli á fáa alþjóðlega þjónustuaðila.

Ráðherrarnir vilja því kanna leiðir til að efla eigin tæknilega getu og styrkja stafræna innviði svæðisins. Áhersla er lögð á að breytingarnar dragi ekki úr nýsköpun eða leggi óþarfa stjórnsýslubyrðar á fyrirtæki. Markmiðið er að auka sjálfstæði ríkjanna í stafrænum málum og draga úr áhættu sem fylgir því að treysta á takmarkaðan fjölda þjónustuaðila.

Aukið samstarf um skýjaþjónustu og öryggi sæstrengja

Eitt helsta verkefnið verður að efla samstarf ríkjanna um innkaup á skýjaþjónustu. Með sameiginlegri nálgun vilja stjórnvöld styrkja samningsstöðu sína og tryggja aukið öryggi og sveigjanleika við rekstur upplýsingakerfa.

Jafnframt verður lögð sérstök áhersla á öryggi sæstrengja sem gegna lykilhlutverki í fjarskiptum og gagnaflutningum milli ríkjanna. Ríkin hyggjast auka samstarf um vernd þessara innviða og viðbrögð við hugsanlegum truflunum.

Á næstu árum verður fjárfestingum og fjármögnun í auknum mæli beint að sameiginlegum verkefnum sem styrkja stafræna innviði, samkeppnishæfni og viðnámsþrótt ríkjanna.

Gervigreind verði nýtt til að efla samkeppnishæfni

Samhliða ráðherrafundinum fór fram sérstakur fundur um gervigreind á vettvangi New Nordics AI High-Level Forum. Þar komu saman fulltrúar stjórnvalda, atvinnulífs, háskóla og borgaralegs samfélags til að ræða hvernig nýta megi gervigreind til að efla atvinnulíf, velferðarþjónustu og stafrænt sjálfstæði.

New Nordics AI er samstarfsvettvangur sem stofnaður var með stuðningi Norrænu ráðherranefndarinnar. Á fundinum var Eistlandi, Lettlandi og Litháen formlega boðið að taka þátt í samstarfinu. Með aukinni þátttöku Eystrasaltsríkjanna er stefnt að því að styrkja sameiginlega þróun og innleiðingu gervigreindar á svæðinu.

Ísland tekur þátt í stefnumótun til ársins 2030

Sigríður Valgeirsdóttir, skrifstofustjóri nýsköpunar-, rannsókna- og stafrænna mála í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, sótti fundinn í Kaupmannahöfn fyrir Íslands hönd.

Ísland tekur þannig þátt í sameiginlegri stefnumótun Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna um uppbyggingu stafrænnar getu til ársins 2030. Áherslan verður á aukið samstarf um innviði, öryggi og nýtingu nýrrar tækni, með það að markmiði að draga úr því hversu háð ríkin eru fáum stórum tæknifyrirtækjum og styrkja stöðu þeirra á alþjóðlegum tæknimarkaði.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila