
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ragnar Guðmundsson, matreiðslumeistara og fyrrum veitngamann í Laugaás og Eirík Inga Friðgeirsson matreiðslumeistara og fyrrum veitingamann á Hólt Holt, í Jólaþættinum á Útvarpi Sögu, um fyrstu starfsár þeirra og eftirminnilegar veislur á íslenskum veitingahúsum. Eiríkur rifjaði upp þegar honum var falin ábyrgð á ríkisveislu fyrir Ólaf Noregskonung árið 1988 en konungurinn kom sjálfur með norskt hreindýrakjöt til landsins sem átti að vera í aðalrétt veislunnar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Konungurinn kom með hráefnið frá Noregi
Eiríkur tók við stjórn eldhússins á Hótel Holti árið 1986, aðeins þremur mánuðum eftir að hann hóf þar störf. Hann sagði ábyrgðina hafa verið mikla enda hefði Holtið verið eitt glæsilegasta veitingahús landsins.
Fyrsta stóra áskorunin kom árið 1988 þegar Ólafur Noregskonungur hélt veislu fyrir forseta Íslands og ríkisstjórnina. Konungurinn kom með norskt hreindýr til landsins samkvæmt þeirri hefð að gestgjafinn legði sjálfur til hráefni í veisluna.
Á matseðlinum var lax í forrétt, hreindýrakjöt í aðalrétt og 3 tegundir af ís í eftirrétt. Eiríkur útbjó ísinn eftir eigin uppskriftum en var þegar orðinn vanur að matreiða hreindýr eftir störf sín við villibráðareldamennsku.
Rjúpa og hreindýr þóttu fínustu veisluréttirnir
Á árum áður sá Hótel Borg um ríkisveislur í ráðherrabústaðnum og veislur fyrir borgarstjórn Reykjavíkur í Höfða. Eiríkur hafði kynnst þeirri hefð á námsárum sínum og rifjaði upp að rjúpa og hreindýr hefðu verið meðal eftirsóttustu aðalrétta í opinberum veislum.
Ragnar starfaði einnig á Hótel Borg á sínum fyrstu árum og minntist sérstaklega kalda hádegisborðsins á 7. áratugnum. Þar voru síldarréttirnir vinsælir og allt útbúið frá grunni.
Eiríkur minntist Jórunnar, eldri konu sem annaðist síldargerðina. Hún flakaði síldina sjálf og sauð kryddlöginn en geymdi jafnframt stóra síldartunnu í porti hótelsins. Ungu matreiðslumennirnir lærðu mikið af handbragði hennar.
Nýjungar á Laugaási breyttu fiskréttunum
Ragnar hóf matreiðslunám á Hressingarskálanum árið 1961 og útskrifaðist 1965. Hann starfaði síðan á Hótel Selfossi og í Leikhúskjallaranum áður en leið hans lá í frekari veitingarekstur.
Á Laugaási fór hann að bjóða upp á fisktegundir sem lítið höfðu verið notaðar á veitingahúsum, meðal annars karfa, löngu og keilu. Fiskkaupmaðurinn hafði í fyrstu svo litla trú á eftirspurninni að Ragnar fékk fiskinn gefins, en þegar pantanirnar jukust fór hann að rukka fyrir hráefnið.
Nýjung í Laugaás- Gratíneraður plokkfiskur með bérnaisesósu og osti
Ragnar rifjaði einnig upp þegar hann byrjaði að gratínera plokkfisk með béarnaisesósu og osti. Eldri matreiðslumenn hefðu hringt og skammað hann fyrir nýjungina en rétturinn naut vinsælda.
Gratíneruð ýsa og lambalæri með béarnaisesósu urðu meðal þekktustu rétta Laugaáss. Síðar bættust gratíneruð bjúgu við, með kartöflumús, sveppasósu, béarnaisesósu og osti.
Matreiðslumenn þurftu að kunna allt frá grunni
Arnþrúður spurði hvaða kunnáttu ungir matreiðslumenn hefðu þurft að tileinka sér áður en þeim var treyst fyrir eldhúsi og veislugestum.
Ragnar sagði hráefnið áður hafa komið mun minna unnið í eldhúsin. Matreiðslumenn þurftu sjálfir að úrbeina heila skrokka, salta kjöt og undirbúa hráefni sem nú fengist tilbúið.
Grænmetisúrvalið hefði einnig verið takmarkað og sveppir yfirleitt fengist í dósum. Þrátt fyrir erfiðari aðstæður hefði þessi vinna skapað traustan grunn fyrir matreiðslumenn sem síðar tóku við ábyrgð á stórum veislum og veitingahúsum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
