
Ný borgarstjórn Reykjavíkur kemur saman til síns fyrsta fundar í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, þriðjudaginn 2. júní, þar sem nýr meirihluti tekur formlega við stjórn borgarinnar eftir borgarstjórnarkosningarnar 16. maí. Fundurinn hefst með greinargerð yfirkjörstjórnar Reykjavíkur um úrslit kosninganna áður en kosið verður um nýjan forseta borgarstjórnar og fjóra varaforseta. Björg Magnúsdóttir verður kjörin forseti borgarstjórnar til 1 árs en Einar Þorsteinsson tekur við formennsku í borgarráði á sama tíma. Gert er ráð fyrir að þau skipti síðar um hlutverk.
Hildur tekur við lyklavöldunum
Hildur Björnsdóttir verður á fundinum kjörin nýr borgarstjóri Reykjavíkur.
Að loknu kjöri verður gert hlé á fundinum þar sem Hildur og Heiða Björg Hilmisdóttir, fráfarandi borgarstjóri, fara á skrifstofu borgarstjóra þar sem formleg afhending lyklavaldsins fer fram.
Fundi borgarstjórnar verður síðan fram haldið að því loknu.
Kosið í ráð og nefndir borgarinnar
Á fundinum verður einnig kosið í fjölda ráða og nefnda Reykjavíkurborgar, þar á meðal íþrótta- og tómstundaráð, mannréttindaráð, menningarráð, umhverfis- og skipulagsráð, velferðarráð, öldungaráð og leikskóla- og daggæsluráð.
Þá verður samþykkt stofnun stýrihóps um hagræðingar og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu. Róbert Ragnarsson borgarfulltrúi mun stýra þeirri vinnu.
Samgöngusáttmáli og fánareglur til umræðu
Meðal annarra mála á dagskrá fundarins eru tillögur um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, breytingar á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut, lengri opnunartíma sundlauga og aukið samstarf við atvinnulífið um rekstur leikskóla og daggæslu.
Jafnframt verður lögð fram tillaga um að leggja niður stafrænt ráð Reykjavíkurborgar og önnur tillaga um að fella niður reglur um notkun fána við stjórnsýsluhús borgarinnar.
