Ný lausn á að tryggja kortagreiðslur við netrof og rafmagnsleysi

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóra í síðdegisútvarpinu um nýjar öryggisráðstafanir í greiðslumiðlun sem eiga að gera almenningi kleift að nota greiðslukort þótt truflanir verði á fjarskiptum eða raforkukerfum. Breytingarnar eiga að taka gildi um næstu mánaðarmót júní / júlí og eru hluti af viðbúnaði, vegna aukinnar áhættu sem fylgir stafrænu og nettengdu fjármálakerfi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Kortagreiðslur við netleysi

Tómas sagði að frá og með 1. júlí muni almenningur geta notað hefðbundin greiðslukort með PIN-númeri, til að greiða fyrir nauðsynjavörur jafnvel þótt nettenging rofni. Lausnin nær meðal annars til matvöruverslana, apóteka, bensínstöðva og annarra staða þar sem mikilvægt er að viðskipti geti haldið áfram við óvenjulegar aðstæður.

Samkvæmt Tómasi þurfa notendur að hafa greitt með plastkorti og PIN-númeri áður en kerfið getur nýtt heimildina ef netið fellur út. Áætlað er að kerfið verði að fullu komið í gagnið þegar skólar hefja störf á ný í lok ágúst, þar sem sumir aðilar í greiðslukeðjunni þurfa enn að ljúka tæknilegum uppfærslum.

Viðbúnaður vegna netárása og bilana

Tómas lagði áherslu á að breytingarnar væru ekki aðeins viðbragð við mögulegum netárásum heldur einnig almennum tæknibilunum. Hann benti á nýlegt dæmi frá Danmörku þar sem bilun við uppfærslu netbúnaðar raskaði greiðslumiðlun um tíma.

Að sögn Tómasar reiðir nútímafjármálakerfi sig að miklu leyti á internet og rafmagn og því sé mikilvægt að samfélagið geti áfram sinnt grunnviðskiptum þótt truflanir verði á þessum innviðum. Ísland sé þar að fylgja fordæmi Norðurlandanna, einkum Dana, Svía, Norðmanna og Finna sem hafi unnið að sambærilegum lausnum undanfarin ár.

Seðlabankinn hvetur fólk til að eiga reiðufé

Aðspurður um hvort þessi nýja lausn sé hluti af þeirri vegferð að taka reiðufé úr umferð segir Tómas ekki vera svo. Þrátt fyrir að kortagreiðslur verði betur varðar gegn truflunum sagði Tómas mikilvægt að almenningur eigi áfram nokkurt reiðufé tiltækt. Hann vísaði til ráðlegginga um að heimili geti staðið undir grunnþörfum í 3 daga ef alvarlegar truflanir verða á samfélagslegum innviðum.

Hann benti jafnframt á að notkun reiðufjár hefði dregist verulega saman á undanförnum árum og væri nú aðeins lítill hluti daglegra viðskipta. Því væri nauðsynlegt að tryggja að rafrænar greiðslur geti staðist betur álag og truflanir en áður.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila