Ný og mjög efnileg skákkynslóð að koma upp

Kristján Örn Elíasson ræddi við Helga Áss Grétarsson, stórmeistara, í þættinum Við skákborðið um unga íslenska skákmenn sem hafa tekið miklum framförum. Helgi sagði ákveðna kynslóð vera að koma upp sem líti mjög vel út og að mikið spennandi starf væri unnið með börnum og unglingum í íslenskri skák. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Stórstígar framfarir á skömmum tíma

Jósef Ómarsson vakti sérstaka athygli Helga á Íslandsmóti skákfélaga. Jósef varð meistari Taflfélags Reykjavíkur með 8,5 vinninga af 9 í lok september og hefur haldið áfram að hækka á skákstigum.

Helgi sagði framfarir hans hafa verið stórstígar á skömmum tíma. Slík stökk gætu komið skyndilega hjá ungum skákmönnum þegar geta þeirra tæki hröðum framförum.

Kristján tók fram að mikið hefði verið lagt í þjálfun Jósefs undanfarin ár og Helgi nefndi að hann væri einnig með erlendan þjálfara. Hann gæti orðið mjög öflugur liðsmaður fyrir Taflfélag Reykjavíkur.

Mikið af hæfileikum hjá yngstu skákmönnunum

Fleiri ungir skákmenn hafa vakið athygli. Haukur Víðir Leifsson, og Pétur Úlfar Ernisson, eru 11 og 12 ára og Helgi lýsti þeim báðum sem mjög efnilegum og hæfileikaríkum.

Haukur er kominn yfir 2.000 skákstig og Pétur nálgast þau mörk.

Átta ára Helgi Fannar Óðinsson hefur einnig vakið mikla athygli. Hann vann opna flokkinn á haustmóti Taflfélags Reykjavíkur og tefldi í Íslandsmóti skákfélaga af styrkleika sem Helgi mat á bilinu 1.700 til 1.800 stig.

Kristján nefndi einnig Dag Sverrisson og Eið Jökulsson auk þess sem margir efnilegir krakkar væru að koma upp í öðrum skákfélögum.

Vor í lofti í íslenskri skák

Helgi sagði sérstaklega eftirtektarvert að sjá kynslóð skákmanna á aldrinum 8 til 13 ára vera að koma fram og taldi hana líta mjög vel út.

Íslandsmót ungmenna frá 8 ára aldri upp í U16 gefur síðan frekara tækifæri til að sjá stöðu yngstu skákmannanna. Helgi lýsti stemningunni þannig að ákveðið vor væri í lofti og að unga kynslóðin liti spennandi út.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila