Ný sóttvarnalög samþykkt – Þessir þingmenn sögðu já

Alþingi hefur samþykkt ný sóttvarnalög. Sóttvarnafrumvarpið sem var lagt fram á ný af Ölmu Möller heilbrigðisráðherra var fyrst lagt fram árið 2022 og hefur verið tekið til meðferðar ítrekað áður en það var samþykkt nú. Við afgreiðslu málsins greiddu 33 þingmenn atkvæði með, 7 á móti og 13 sátu hjá.

Harðorð gagnrýni á valdheimildir

Málið hefur þó sætt harðri gagnrýni þar sem bent er á að með henni séu festar í sessi víðtækar heimildir stjórnvalda til inngripa í daglegt líf borgaranna, meðal annars með heimildum með frelsissviptingum, auk fleiri íþyngjandi inngripa. Í þeirri gagnrýni hefur verið bent á að lögin gangi lengra en nauðsynlegt sé og að mikil hætta sé á íþyngjandi beitingu valds.

Sérstaklega hefur verið varað við því að aukið svigrúm ráðherra og sóttvarnalæknis geti raskað jafnvægi milli almannaöryggis og einstaklingsfrelsis. Þá er bent á að skýrari lagarammi tryggi ekki sjálfkrafa aukið aðhald heldur geti einnig styrkt umdeildar heimildir.

Þessir þingmenn samþykktu sóttvarnafrumvarpið

  1. Alma D. Möller
  2. Arna Lára Jónsdóttir
  3. Ása Berglind Hjálmarsdóttir
  4. Ásthildur Lóa Þórsdóttir
  5. Dagbjört Hákonardóttir
  6. Dagur B. Eggertsson
  7. Elín Íris Fanndal
  8. Eydís Ásbjörnsdóttir
  9. Eyjólfur Ármannsson
  10. Grétar Mar Jónsson
  11. Guðmundur Ingi Kristinsson
  12. Guðmundur Ari Sigurjónsson
  13. Ingvar Þóroddsson
  14. Jóhann Páll Jóhannsson
  15. Jón Gnarr
  16. Karólína Helga Símonardóttir
  17. Kristján Þórður Snæbjarnarson
  18. Kristrún Frostadóttir
  19. Lilja Rafney Magnúsdóttir
  20. Logi Einarsson
  21. María Rut Kristinsdóttir
  22. Pawel Bartoszek
  23. Pétur Björgvin Sveinsson
  24. Ragna Sigurðardóttir
  25. Ragnar Þór Ingólfsson
  26. Rúnar Sigurjónsson
  27. Sandra Sigurðardóttir
  28. Sigmar Guðmundsson
  29. Sigmundur Ernir Rúnarsson
  30. Sigurjón Þórðarson
  31. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
  32. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
  33. Þórunn Sveinbjarnardóttir
Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila