Ný stjórn Landsspítalans skipuð

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað nýja stjórn Landspítala til næstu tveggja ára samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu. Regína Ásvaldsdóttir verður formaður stjórnar og Birna Einarsdóttir varaformaður. Aðrir aðalmenn í stjórninni eru Anna Sigríður Íslind, Thor Aspelund og Guðjón Hauksson. Varamenn eru Óskar Reykdalsson og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir.

Jafnframt hefur ráðherra skipað tvo áheyrnarfulltrúa starfsmanna spítalans, Signýju Sveinsdóttur hjúkrunarfræðing og Theodór Skúla Sigurðsson svæfingalækni. Steinunn Pálsdóttir sjúkraþjálfari verður varamaður þeirra.

Á að marka langtímastefnu Landspítala

Stjórn Landspítala hefur það hlutverk að móta langtímastefnu spítalans í samráði við forstjóra og í samræmi við stefnumörkun ráðherra og lögbundið hlutverk stofnunarinnar.

Hún á einnig að fara yfir árlega starfs- og fjárhagsáætlun spítalans, leggja sjálfstætt mat á markmið og mælikvarða og skila ráðherra áliti sínu.

Ráðherra væntir mikils af nýrri stjórn

Alma D. Möller segir nýju stjórnina skipaða fólki með víðtæka þekkingu og reynslu á þeim sviðum sem lög gera ráð fyrir.

„Þetta er öflugur hópur fólks sem saman býr yfir víðtækri þekkingu, menntun og reynslu á breiðu sviði í samræmi við lagaákvæðið um stjórn Landspítala,“ segir ráðherra.

Hún bendir jafnframt á að með skipaninni skapist mikilvæg tengsl við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, öldrunarþjónustu og Sjúkrahúsið á Akureyri.

„Mér finnst afar mikilvægt að efla tengsl og samstarf þess við Landspítala. Ég vænti mikils af nýrri stjórn og óska henni velfarnaðar,“ segir Alma.

Reynslumikill hópur tekur við

Regína Ásvaldsdóttir, sem verður formaður stjórnar, er félagsráðgjafi að mennt og hefur gegnt fjölda stjórnunarstarfa, meðal annars sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar og sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.

Birna Einarsdóttir var bankastjóri Íslandsbanka frá 2008 til 2023 og situr nú í stjórnum nokkurra fyrirtækja.

Anna Sigríður Íslind er prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í stafrænni heilbrigðistækni og gervigreind.

Thor Aspelund er prófessor við Háskóla Íslands og einn afkastamesti vísindamaður landsins á sviði lýðheilsu og líftölfræði.

Guðjón Hauksson tók nýverið við sem forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri en starfaði áður sem forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Hann hefur einnig gegnt fjölmörgum störfum innan íslenska heilbrigðiskerfisins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila