
Dómsmálaráðherra opnaði í dag nýja stafræna tilkynningagátt og fræðslusvæði um netglæpi á vef lögreglu. Með úrræðinu geta einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir tilkynnt netglæpi með einföldum og öruggum hætti. Gáttin sameinar tilkynningar og upplýsingar á einum stað og styrkir þannig viðbragðsgetu lögreglu við netsvikum og annarri brotastarfsemi á netinu.
Einfaldara tilkynningarferli og aukin fræðsla
Með nýju gáttinni er hægt að senda bæði formlegar tilkynningar um brot og ábendingar um tilraunir til netglæpa. Samhliða er sett upp fræðslusvæði þar sem finna má upplýsingar um algengar svikleiðir og hvernig hægt er að verja sig. Markmiðið er að auka vitund almennings og bæta aðgengi að upplýsingum, auk þess að einfalda ferlið við að koma upplýsingum til lögreglu.
Fjársvik í forgangi
Í fyrstu verður sérstök áhersla lögð á fjársvik sem eru meðal algengustu netglæpa. Slík brot valda verulegu fjárhagslegu tjóni og hafa víðtæk áhrif á traust í samfélaginu. Upplýsingar sem berast í gegnum gáttina nýtast lögreglu til að greina mynstur í brotastarfsemi, bregðast hraðar við og vinna markvisst gegn skipulögðum netglæpum.
Styrkir varnir samfélagsins
Með sameiginlegu kerfi fyrir tilkynningar og aukinni fræðslu er stigið skref í að efla varnir samfélagsins gegn netsvikum. Jafnframt er þjónusta við þá sem verða fyrir slíkum brotum bætt og gagnsæi aukið í viðbrögðum við netglæpum.
Smelltu hér til þess að komast á netgáttina
