
Verknámsaðstaða við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra verður reist í tveimur áföngum og hefjast framkvæmdir við fyrri áfangann næsta vetur. Viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð í dag af mennta- og barnamálaráðuneytinu, Sveitarfélaginu Skagafirði og skólanum. Sveitarfélagið Skagafjörður mun hafa umsjón með framkvæmdunum á grundvelli frumathugunar Framkvæmdasýslu ríkisins.
Ríkið greiðir stærstan hluta kostnaðarins
Fram kemur að unnið verði áfram að áætlanagerð og hönnun verkefnisins á grundvelli frumathugunar Framkvæmdasýslunnar og hugmynda verkfræðistofunnar Stoðar ehf.
Ríkissjóður mun greiða 60% af kostnaði framkvæmdarinnar en sveitarfélög á Norðurlandi vestra standa undir 40%.
Hluti af eflingu verknáms á landsbyggðinni
Uppbyggingin við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra er hluti af víðtækari uppbyggingu verknáms á landsbyggðinni. Samhliða verða ráðist í framkvæmdir við Verkmenntaskólann á Akureyri, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Menntaskólann á Ísafirði.
Uppsafnaðar fjárheimildir nýttar í verkefnin
Samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum eru til staðar uppsafnaðar fjárheimildir sem nýtast til verkefnanna. Fráteknar fjárheimildir fyrri ára og fjárheimildir í gildandi fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 nema samtals tæpum 5 milljörðum króna, eða 4.967 m.kr.
Fjármunirnir eiga að nýtast við uppbyggingu verknámsskólanna fjögurra auk áframhaldandi uppbyggingar verknámsaðstöðu við Fjölbrautaskólann í Breiðholti sem er komin langt á veg.
