
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðna Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu í dag, um nýja myndskreytta viðhafnarútgáfu Brennu-Njáls sögu sem fyrirhugað er að gefa út 20. nóvember. Bókin byggist á útgáfu Jóns Böðvarssonar frá því fyrir um hálfri öld og verður prýdd rúmlega 50 litmyndum eftir Þórhildi Jónsdóttur frá Lambey í Fljótshlíð. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Málið fært nær nútímanum
Guðni hefur ásamt Njálufélaginu unnið að því að halda Brennu-Njáls sögu og menningararfinum í kringum hana á lofti. Hann sagði nýju bókina viðhafnarútgáfu á verki Jóns Böðvarssonar með millifyrirsögnum og orðskýringum.
Málið hefur verið fært nær nútímanum án þess að glata hinni römmu íslensku. Rúmlega 50 litmyndir Þórhildar Jónsdóttur verða í bókinni. Guðni sagði Þórhildi hafa setið á gólfinu hjá föður sínum sem barn, lesið Njálu og teiknað hetjur sögunnar eins og hún sá þær fyrir sér. Guðni lýsti bókinni sem stórri og fallegri bók sem ætti frekar heima á stofuborðinu en náttborðinu.
Njála styrkir íslenska tungu
Arnþrúður spurði hvers vegna ráðist væri í nýja útgáfu Njálu nú og hvað það væri við söguna sem gerði hana að einni helstu Íslendingasögunni.
Guðni sagði Njálu eina merkustu bók Íslendinga og hún hefði farið víða um heim og væri dáð í mörgum löndum. Hann lagði sérstaka áherslu á gildi hennar fyrir íslenska tungu.
Þeir sem læsu Njálu og lærðu hana auðguðu mál sitt og yrðu sterkari í íslensku. Varðveisla sögunnar væri því einnig hluti af varðveislu tungumálsins.
Hann sagði frásögn Njálu knappa og málið listrænt og rammt. Þar væri lítið um málæði og orðaflóð en lýsingarnar stuttar, skarpar og lifandi.
Áhugi á Njálu að vakna á ný
Guðni sagðist finna fyrir auknum áhuga á Njálu. Skólafólk væri farið á Njáluslóðir og margir hefðu haft samband vegna nýju útgáfunnar. Sumir hygðust gefa bókina fermingarbörnum, börnum eða barnabörnum. Guðni sagðist sjálfur ætla að gefa dætrum sínum, tengdasonum og barnabörnum bókina í jólagjöf.
Fólk getur skráð sig á stuðnings- og óskalista hjá Njálufélaginu og fengið bókina á sérstöku verði. Guðni sagði þann möguleika hafa verið framlengdan til að fleiri gætu tekið þátt í verkefninu. Smelltu hér til þess að kaupa bókina.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
