
Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Framsókn hafa kynnt nýjan meirihlutasáttmála í Reykjavík þar sem flokkarnir leggja fram sextán verkefni sem þeir ætla að ráðast í þegar nýr meirihluti tekur formlega við völdum 2. júní næstkomandi. Meirihlutinn mun undir forustu Hildar Björnsdóttur sem verður borgarstjóri leggur áherslu á breytingar í samgöngumálum, skólamálum, skipulagsmálum og hagræðingu í rekstri borgarinnar.
Vilja endurskoða samgöngusáttmálann
Eitt stærsta verkefnið sem nýi meirihlutinn hyggst ráðast í er samtal við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélög um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þar verður horft til fjármögnunar verkefna og framkvæmdahraða.
Einnig stendur til að endurskoða fyrirhugað deiliskipulag við Suðurlandsbraut og breytingar á gatnamótum við Höfðabakka. Þá vilja flokkarnir stytta gjaldskyldutíma á bílastæðum í miðborg Reykjavíkur í samstarfi við íbúa og atvinnulíf.
Áhersla á skóla og fjölskyldumál
Í sáttmálanum kemur fram að nýi meirihlutinn hyggist auglýsa eftir vinnustöðum til samstarfs um rekstur leikskóla eða daggæslu. Jafnframt verði sett mælanleg markmið um aukinn árangur í skólastarfi með það að markmiði að byggja upp skólakerfi í fremstu röð.
Flokkarnir ætla einnig að efla stoðþjónustu við börn innan skóla borgarinnar og tryggja að öll börn geti tekið þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
Ný hverfi og breytingar á skipulagi
Nýi meirihlutinn ætlar að breyta fyrirliggjandi skipulagi nýrra hverfa í Keldnalandi og Úlfarsárdal. Þá stendur til að hefja skipulag nýrra framtíðarhverfa á Kjalarnesi, Geldinganesi, Gufunesi og Granda.
Einnig verður ráðist í breytingar á stjórnkerfi borgarinnar með það að markmiði að auka skilvirkni og draga úr sóun. Þar að auki stendur til að bjóða út sorphirðu í einu hverfi í tilraunaskyni til undirbúnings frekari útboða.
Lækka fasteignaskatta og lengja opnun sundlauga
Meðal annarra verkefna sem nýr meirihluti ætlar að ráðast í er að lengja opnunartíma sundlauga til klukkan 22, kortleggja aðstöðumál íþróttafélaga og lækka fasteignaskatta á bæði íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði.
Þá hyggjast flokkarnir bjóða tekjulágu eldra fólki 60 þúsund króna árlegan frístundastyrk og ráðast í skógræktarátak samhliða því að efla græn svæði borgarinnar.
