Segir nýsköpun ekki vera lúxus heldur nauðsyn

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra og Guðmundur Hafsteinsson, formaður stýrihópsins

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kynnti á dögunum nýja Nýsköpunarstefnu fyrir Ísland í Sjávarklasanum.

Stefnunni er ætlað að gera Ísland betur í stakk búið til að mæta áskorunum framtíðarinnar með því að byggja upp traustan grundvöll fyrir hugvitsdrifna nýsköpun á öllum sviðum.

Nýsköpun er ekki lúxus heldur nauðsyn,“ segir Þórdís Kolbrún.

Við mótun stefnunnar tóku þátt fulltrúar frá öllum stjórnmálaflokkum sem eiga sæti á Alþingi, fulltrúar atvinnulífsins og háskólasamfélagsins. Vinnu stýrihóps leiddi Guðmundur Hafsteinsson, frumkvöðull og fyrrverandi yfirmaður vöruþróunar á Google Assistant.

Nýsköpunarstefnu fyrir Ísland er ætlað að marka sýn til ársins 2030. Í henni er sett fram það markmið að árið 2030 sé Ísland fjölbreytt samfélag velferðar, öryggis og jafnra tækifæra. Ísland verði í fremstu röð þegar borin eru saman lífsgæði og hamingja í löndum heims. Samfélag þar sem nýsköpun er inngróin í menningu og efnahagslíf og kjörlendi til að setja á fót og starfrækja alþjóðlega samkeppnishæf fyrirtæki. Samfélag þar sem virðing er borin fyrir frumkvöðlum og skapandi einstaklingum í efnahagslífi og menningu og er fyrirmynd annarra ríkja hvað varðar sjálfbæra þróun.

Það skiptir máli að hafa teiknað upp þá grunnsýn til næstu ára sem er lögð fram í nýsköpunarstefnu fyrir Ísland, því að hún verður undirliggjandi hugmyndafræði þeirra aðgerða sem munu fylgja í kjölfarið. Við höfum alla burði til að vera virkir og fullgildir þátttakendur í hröðum og síbreytilegum heimi nýsköpunar og tæknibreytinga. Það er áskorun sem við þurfum að takast á við til að tryggja framúrskarandi lífskjör og velsæld á Íslandi á komandi áratugum. Sú stefna sem hér er lögð fram gerir okkur að mínu mati betur í stakk búin til þess en nokkru sinni fyrr,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila