Nýtt Covid-afbrigði ARCTURUS kynnt um leið og WHO og ESB undirbúa alheims bólupassa

Roman Balmakov t.v. segir frá þeirri „einkennilegu tilviljun“ að nýtt afbrigði kórónuveirunnar uppgötvast samtímis og WHO og ESB innleiða samstarf um að koma á stafrænum persónuskilríkjum í snjallsíma jarðarbúa að hætti Kommúnistaflokks Kína (skjáskot Epoch Times TV).

Smit- og sjúkdómavarnastofnun Bandaríkjanna CDC tilkynnti nýlega um nýtt afbrigði Covid-veirunnar „ARCTURUS“ og að hið nýja afbrigði smitaði nú þegar um 20% allra Covid-smita. XBB.1.16 eða ARCTURUS er nýjasta afbrigðið og þurfa bóluefnaframleiðendur núna að uppfæra bóluefnin svo þau virki gegn því. Þar með halda bólusetningar áfram og meira af stórhættulegum gaddapróteins bóluefnum verður sprautað í þá, sem enn gangast sjálfviljugir undir þessa tilraunastarfsemi.

US. News segir frá kynningu CDC á nýja Covid-afbrigðinu og beiðni til bólurisanna um að uppfæra bóluefnið. The Epoch Times sagði frá þessu í þætti Roman Balmakov Facts Matter eða „Staðreyndir skipta máli“ (sjá myndskeið að neðan). Snapphanen.dk er einnig með frétt um málið. Útvarp Saga hefur skrifað margar fréttir um samstarf WHO og ESB sjá hér, hér og hér. Balmakov segir:

„CDC tilkynnti nýlega um nýtt COVID afbrigði, ARCTURUS, sem dreifist um Bandaríkin og ber með sér nokkur óvenjuleg einkenni sem ekki koma fram með öðrum afbrigðum. Það er merkilegt að koma þessa nýja afbrigðis fellur algjörlega saman við nýja áætlun Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO um að taka í notkun stafræn bólusetningarvegabréf Evrópusambandsins. Nota á bólupassa ESB sem ramma fyrir ný, eigin, alþjóðleg, stafræn heilbrigðisskilríki.“

Tengja saman heilbrigðisskilríki við bankaauðkenni á snjallsímum

WHO og ESB tala fjálglega um hið nýja alræðis eftirlitskerfi með jarðarbúum sem er í anda Kommúnistaflokks Kína:

„Í júní 2023 tók WHO upp kerfi Evrópusambandsins (ESB) fyrir stafræna Covid-19 vottun til að koma á alþjóðlegu kerfi sem sagt er að sé til að auðvelda hreyfanleika á heimsvísu og vernda borgara um allan heim gegn viðvarandi og framtíðarógnum í heilbrigðismálum, þar á meðal heimsfaraldri. Þetta er fyrsta byggingareiningin í „Alþjóða stafrænu heilbrigðisvottunarkerfi WHO“ Global Digital Health Certification Network (GDHCN) sem mun þróa fjölbreytt úrval af stafrænum vörum sem eiga að skila betri heilsu fyrir alla.“

Alræðiseftirlit með einstaklingnum

Það sem alræðisöflin í WHO og ESB segja ekki frá er að sjálfsögðu, að miðstöð alheimsstjórnunar mun fá allar upplýsingar um alla einstaklinga og fyrir utan að vita nákvæmlega um innkaup, ferðir og allt einkalíf viðkomandi, þá öðlast stofnanirnar alræðislegt vald yfir hverjum og einum og geta lokað á bankareikninga fólks, möguleika t.d. til að kaupa flugmiða og ferðast, hækka eða lækka lánaheimildir og upphæð vaxta, gera fólk eignalaust og þar fram eftir götunum. Þannig stjórna kommúnistarnir í Kína og það er fyrirmyndin fyrir nýrri ógnarstjórn hinnar ofurríku klíku, sem ætlar að hrifsa til sín allt á Jörðinni og gera að sinni eign.

WHO og ESB tengja saman bólupassann við bankaauðkennin og fá þannig fullkomið eftirlit með öllum kaupum þínum og einfalda leið til að taka óþægilegt fólk „úr umferð“ með því að loka aðgang að bankareikningum sínum

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila