
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ragnar Sigurð Kristjánsson, hagfræðing Viðskiptaráðs, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu í dag, um fyrirhugaðar breytingar á lögum um Ríkisútvarpið og rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla. Viðskiptaráð gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarpið og telur það ekki taka á meginvanda íslensks fjölmiðlamarkaðar sem felist í umfangsmikilli starfsemi RÚV á auglýsingamarkaði samhliða opinberri fjármögnun. Ragnar segir fyrirhugaðar breytingar skapa óeðlilega fjárhagslega hvata og stuðningur ríkisins við einkarekna fjölmiðla sé aðeins tímabundin lausn á mun stærra vandamáli. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Einkareknir fjölmiðlar verði háðir auglýsingatekjum RÚV
Samkvæmt frumvarpinu eiga 10% af auglýsingatekjum RÚV að renna í stuðningssjóð einkarekinna fjölmiðla. Jafnframt er lagt til að auglýsingatekjur ríkismiðilsins verði háðar 2,8 milljarða króna viðmiði og tekjur umfram þá fjárhæð renni einnig í sjóðinn.
Ragnar sagði þetta skapa sérstaka stöðu þar sem einkareknir fjölmiðlar hefðu fjárhagslegan ávinning af því að helsta samkeppnisaðila þeirra gengi sem best í auglýsingasölu. Því meira sem RÚV seldi af auglýsingum, þeim mun meira fé gæti runnið til einkarekinna fjölmiðla í gegnum styrkjakerfið eftir því sem sagt væri í frumvarpinu.
Fyrirhugað tekjuþak RÚV er sýndarþak
Hann gerði einnig athugasemdir við fyrirhugað tekjuþak og kallaði það sýndarþak. Auglýsingatekjur RÚV hefðu að hans minni verið á bilinu 2,6–2,8 milljarðar króna undanfarin ár og viðmiðið ætti auk þess að hækka árlega í samræmi við verðlag. Því væru litlar líkur á að ríkismiðillinn færi yfir mörkin.
Fyrirkomulagið gæti jafnframt skapað hvata til að lækka verð á auglýsingum þegar tekjurnar nálguðust þakið, meðal annars með afsláttum eða pakkatilboðum. Þegar þakinu væri náð myndi fjárhagslegur hvati RÚV til frekari auglýsingasölu hins vegar minnka.
Ríkisframlag til RÚV áfram 7,5 sinnum hærra
Ragnar sagði stuðningssjóð einkarekinna fjölmiðla stækka úr um 600 milljónum króna í um 900 milljónir samkvæmt fyrirhuguðum breytingum. Þrátt fyrir það yrði opinbert framlag til RÚV áfram 7,5 sinnum hærra en það fé sem allir einkareknir fjölmiðlar landsins þyrftu að skipta á milli sín.
Arnþrúður vakti athygli á því að RÚV nyti bæði lögbundinnar fjármögnunar frá almenningi og tekna af auglýsingamarkaði. Hún dró í efa að hægt væri að skapa eðlilega samkeppni á svo litlum markaði á meðan ríkismiðillinn hefði þessa sérstöðu.
Ragnar tók undir að smæð íslenska markaðarins gerði málið enn mikilvægara. Opinber fjármögnun og auglýsingasala RÚV samhliða skekktu samkeppnisstöðuna og gerðu öðrum fjölmiðlum erfiðara að byggja upp sjálfbæran rekstur.
Hann sagði styrkjakerfið ekki leysa þennan vanda heldur aðeins bæta að einhverju leyti upp afleiðingar hans.
Ísland sker sig úr meðal Norðurlandanna
Ragnar rakti hvernig fjármögnun almannaþjónustumiðla væri háttað annars staðar á Norðurlöndunum. Þar væri almenna reglan sú að miðlar sem nytu opinberrar fjármögnunar kepptu ekki jafnframt um auglýsingatekjur.
Í Danmörku væri DR fjármagnað af hinu opinbera án þess að selja auglýsingar. TV 2 væri einnig í eigu ríkisins en fjármagnaði starfsemi sína með auglýsingum og kostun án opinbers framlags. Í Bretlandi hefði BBC heldur ekki heimild til auglýsingasölu.
Hann nefndi jafnframt að í Frakklandi og Þýskalandi giltu víða strangari takmarkanir á auglýsingatíma en hér á landi.
Viðskiptaráð vildi helst að RÚV hyrfi alveg af auglýsingamarkaði. Ef ekki væri pólitískur vilji til þess mætti takmarka auglýsingasölu ríkismiðilsins á ákveðnum tímum sólarhrings eða draga úr þátttöku hans í samkeppni um sérstaklega auglýsingavæna viðburði.
Arnþrúður nefndi meðal annars möguleikann á að takmarka auglýsingar á kvöldin og um helgar eins og gert væri í Þýskalandi og tímalengdin yfir hvern dag 20 mín sem væru leyfðar til auglýsinga. Ragnar tók vel í að slíkar leiðir yrðu skoðaðar í stað þess að endurdreifa hluta auglýsingatekna RÚV.
Tímabundnir COVID-styrkir orðnir varanlegt kerfi
Ragnar rifjaði upp að opinberir styrkir til einkarekinna fjölmiðla hefðu upphaflega verið settir á sem tímabundin efnahagsaðgerð vegna COVID-faraldursins.
Gert hefði verið ráð fyrir að kerfið gilti í 2 ár en nú væri búið að festa stuðninginn í lög til næstu 5 ára. Þar með hefði tímabundið úrræði þróast í varanlegan þátt í fjármögnun fjölmiðla.
Fjárhagslegt samband fjölmiðla og stjórnvalda hefur neikvæð áhrif
Hann varaði við því að fjárhagslegt samband fjölmiðla og stjórnvalda gæti haft neikvæð áhrif á sjálfstæði fréttastofa. Reglum um úthlutanir mætti breyta og þar með hafa áhrif á tekjur einstakra miðla. Sem dæmi nefndi hann að hámarkshlutfall styrkja til hvers miðils hefði verið lækkað úr 25% í 22%, sem hefði meðal annars haft áhrif á miðla Árvakurs, Sýnar og fleiri.
Ragnar tók fram að hann væri ekki að halda því fram að breytingin hefði verið gerð af illum ásetningi. Hún sýndi hins vegar hversu óheppilegt væri að rekstur sjálfstæðra fjölmiðla væri háður ákvörðunum stjórnvalda um fjárveitingar og úthlutunarreglur.
Fækkun sjálfstæðra fréttastofa geti veikt fjölmiðlaflóruna
Arnþrúður fjallaði um lokun sjónvarpsfréttastofu Sýnar og þær afleiðingar sem fækkun sjálfstæðra fréttastofa gæti haft fyrir íslenskt samfélag. Hún varaði við því að í svo fámennu landi gæti skapast sú staða að stór hluti almennings sækti fréttir sínar til sama miðils. Það gæti dregið úr fjölbreytni sjónarmiða og aðhaldi í opinberri umræðu.
Ragnar tók undir mikilvægi þess að fréttamiðlun kæmi úr fleiri en einni átt. Öflugir sjálfstæðir fjölmiðlar gætu veitt RÚV samkeppni og aðhald, meðal annars þegar kæmi að hlutleysi og fjölbreytni í fréttaflutningi.
Hann sagði fjárhagslegt sjálfstæði vera mikilvæga forsendu fyrir slíkri samkeppni. Frumvarpið um RÚV tæki ekki á þeim grundvallarvanda að ríkismiðillinn nyti umfangsmikils opinbers stuðnings á sama tíma og hann keppti við einkarekna fjölmiðla um auglýsingatekjur.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
