
Áform eru uppi um byggingu nýs húss fyrir dans- og varnaríþróttir í Breiðholti sem á að styrkja íþróttastarf og samfélagslíf í hverfinu. Borgarráð hefur samþykkt að hefja undirbúning og hugmyndaleit fyrir verkefnið.
Húsið er fyrirhugað við Gerðuberg, í nágrenni við núverandi íþrótta- og þjónustukjarna. Staðsetningin er talin styrkja svæðið sem miðpunkt í Efra-Breiðholti.
Undirbúningur hefst í apríl
Verkefnið fer í tvíþætt ferli þar sem fyrst verður unnin ítarleg greining í samvinnu við hagsmunaaðila. Þar verður mótuð framtíðarsýn og skilgreind stærð, notkun og rekstrargrundvöllur hússins.
Að því loknu fer fram hugmyndaleit þar sem 3–5 hönnunarhópar verða valdir til að leggja fram tillögur. Ein tillaga verður síðan valin til áframhaldandi þróunar. Gert er ráð fyrir að undirbúningur og hugmyndaleit hefjist á næstu dögum.
Áhersla á íþróttir og samfélag
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segir verkefnið mikilvægt skref til að efla bæði íþróttastarf og samfélag í Breiðholti. Hún leggur áherslu á að staðsetningin við Gerðuberg skapi fleiri tækifæri til hreyfingar, þátttöku og samveru íbúa.
