
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ögmund Jónasson, sagnfræðing, fyrrverandi ráðherra og fyrrverandi fréttamann RÚV, í síðdegisútvarpinu, um aukna hervæðingu í Evrópu og þá þróun að meira fé renni til vopna og varnarmála. Ögmundur vill endurvekja öflugar friðarhreyfingar og segir þrýsting almennings hafa átt stóran þátt í þeim afvopnunarsamningum sem fylgdu í kjölfar Höfðafundarins árið 1986. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Vopnaiðnaður og bankar hagnast á hervæðingunni
Ögmundur gagnrýndi þá þróun að dregið sé úr samskiptum og viðskiptum milli ríkja og í staðinn lögð áhersla á refsiaðgerðir og aukinn vígbúnað. Hann sagði vopnaiðnaðinn hafa hagsmuni af ófriði og spennu.
Arnþrúður bætti við að bankar og fjármálakerfið hefðu einnig mikla hagsmuni af vopnakaupum þar sem ríki tækju lán til að fjármagna hernaðarútgjöld.
Ögmundur tók undir þetta og nefndi grísku fjármálakrísuna sem dæmi. Hann sagði Grikki hafa verið undir miklum þrýstingi um einkavæðingu og sölu eigna á sama tíma og stór hluti skulda þeirra tengdist kaupum á skriðdrekum og öðrum vopnum.
Milljónir manna þrýstu á stórveldin
Ögmundur rifjaði upp friðarhreyfingar 9. áratugarins og sagði Ronald Reagan og Míkhaíl Gorbatsjov ekki hafa komið til Höfða ótilneyddir. Milljónir manna hefðu farið út á götur í Bonn, Berlín, Washington og víðar og krafist friðar og afvopnunar.
Þessi þrýstingur hefði hjálpað til við að skapa jarðveginn fyrir samninginn um bann við skammdrægum og meðaldrægum kjarnorkuvopnum árið 1987. Ögmundur sagði á þriðja þúsund kjarnorkueldflaugar hafa verið eyðilagðar í kjölfarið.
Hann rifjaði jafnframt upp að hann hefði sjálfur verið fréttamaður RÚV þegar Gorbatsjov kom til Íslands og tekið á móti honum á Keflavíkurflugvelli fyrir Höfðafundinn.
Lítil andstaða við herskyldu og niðurskurð
Arnþrúður spurði hvers vegna afvopnun hefði misst jafn mikið vægi og raun bæri vitni þegar aftur væri rætt um kjarnorkufælingu og sívaxandi hernaðarútgjöld.
Ögmundur sagði almenning hafa látið þagga sig og orðið móttækilegri fyrir áróðri hernaðaraflanna. Hann benti á litla andstöðu við hugmyndir um herskyldu í Þýskalandi og við að skerða velferðarþjónustu til að fjármagna aukinn vígbúnað.
Arnþrúður nefndi Frakkland þar sem niðurskurður í velferðar- og heilbrigðismálum hefði skapað mikla óánægju því áherslan væri á aukin útgjöld til hernaðarmála.
Ögmundur vill að almenningur láti aftur til sín taka með sama hætti og á 9. áratugnum. Hann sagði breytinguna ekki koma nema með þrýstingi frá fjöldanum og hafnaði því jafnframt að íslenskt skattfé ætti að renna til vopnakaupa fyrir Úkraínu. Ísland ætti að leggja sitt af mörkum til friðar í stað frekari hervæðingar.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
