Ögmundur: Ísland er á áhrifasvæði Bandaríkjanna

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ögmund Jónasson, sagnfræðing, fyrrverandi ráðherra og fyrrverandi fréttamann RÚV, í síðdegisútvarpinu í dag, um breytta stórveldastefnu Bandaríkjanna og stöðu Íslands á Norður-Atlantshafi. Ögmundur sagði Ísland hafa verið á áhrifasvæði Bandaríkjanna frá miðri síðustu öld og varnarsamningurinn breytti engu um þá stöðu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Monroe-kenningin komin aftur í nýrri mynd

Ögmundur setti stefnu Bandaríkjanna í sögulegt samhengi og rifjaði upp Monroe-kenninguna frá 1823. Upphaflega hefði hún snúist um að halda evrópskum nýlenduveldum frá Ameríku en með viðbót þáverandi forseta Theodore Roosevelt, árið 1904 hefði stefnan þróast yfir í réttlætingu fyrir bandarískum afskiptum í Rómönsku Ameríku.

Ögmundur benti á að Donald Trump væri að endurvekja Monroe-kenninguna með því að líta á vesturhvel jarðar sem áhrifasvæði Bandaríkjanna. Ísland væri ekki utan þeirrar myndar. Ögmundur sagði stöðu landsins þá sömu og hún hefði verið frá miðri síðustu öld. Bandaríkin litu á Ísland sem hluta af sínu áhrifasvæði burtséð frá varnarsamningnum og hefðu lengi litið svo á að landið væri innan þeirra geópólitísku yfirráða.

GIUK-línan og landfræðileg staða Íslands

Arnþrúður rifjaði upp umræðuna um GIUK-línuna, Grænland, Ísland og Bretland, og spurði hvort Ísland væri ekki mikilvægur hlekkur í stórveldisstefnu Bandaríkjanna vegna legu landsins.

Ögmundur sagði GIUK-línuna hafa haft mikilvægt hlutverk á tímum Sovétríkjanna, þegar sovéski flotinn hafði umsvif á Norðurhöfum. Hann hafnaði því hins vegar að sama staða væri uppi nú og kallaði tal um aukin umsvif rússneska flotans á svæðinu meira og minna uppspuna sem væri notaður til að réttlæta frekari hernaðaruppbyggingu.

Hann gagnrýndi jafnframt þá stefnu að beina sífellt meira fjármagni í vopn og varnir í stað velferðar og sagði hernaðarmaskínuna hafa náð miklum áhrifum.

Ísland haldi sig frá stórveldispólunum – Ekkert skjól hjá ESB

Arnþrúður spurði hvort landfræðileg lega Íslands gerði landið óhjákvæmilega að hluta af stórveldasamkeppni Bandaríkjanna.

Ögmundur sagði Ísland þurfa að endurskoða stöðu sína á alþjóðavettvangi og hafnaði þeirri hugmynd að svarið væri að leita skjóls hjá Evrópusambandinu gegn Bandaríkjunum.

Hann vill að Ísland haldi meiri fjarlægð frá öllum stærstu valdapólum heimsins, hvort sem þar eru Bandaríkin, Evrópusambandið, Rússland, Kína eða önnur stórveldi.

Barátta stórveldanna snúist á endanum um yfirráð og auðlindir. Ögmundur nefndi Sýrland og Úkraínu sem dæmi þar sem land, orka og önnur verðmæti væru stór hluti af valdabaráttunni.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila