Ógnarstjórnun og átök ríkja á leigubílastæðum við Keflavíkurflugvöll

Kristján Örn Elíasson ræddi við Friðrik Einarsson, leigubílstjóra sem betur er þekktur sem Taxi hunter í síðdegisútvarpinu í dag, um stöðuna á leigubílastæðum við Keflavíkurflugvöll. Í viðtalinu lýsti Friðrik ástandi sem hann sagði einkennast af átökum, ógnarstjórnun, ólöglegum skutlaraakstri og mikilli óánægju meðal bílstjóra með stjórnun svæðisins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Myndbönd Friðriks vöktu athygli á ástandinu

Friðrik hefur undanfarin ár haldið úti Facebook-síðunni Taxi Hunter, þar sem hann birtir myndbönd frá leigubílastæðum við Keflavíkurflugvöll. Hann sagði myndböndin hafa vakið mikla athygli og í sumum tilvikum fengið hundruð þúsunda áhorfa. Ýmsar uppákomur hafa orðið á bílastæðinu að sögn Friðriks. Hann lýsti meðal annars atviki þar sem erlendur leigubílstjóri réðst á eldri íslenskan bílstjóra á svæðinu. Að hans sögn ríkir mikil spenna á stæðunum og margir bílstjórar treysti sér ekki til að kæra ofbeldisatvik eða koma fram undir nafni vegna ótta við afleiðingar.

Gagnrýnir stjórnun við flugvöllinn – Sjálfur settur í bann

Í viðtalinu gagnrýndi Friðrik bæði Samgöngustofu og Isavia fyrir að hafa misst tökin á þróuninni við flugvöllinn. Hann sagði sjálfstætt starfandi bílstjóra standa berskjaldaða gagnvart ákvörðunum stjórnvalda og menn gætu misst aðgang að svæðinu án þess að eiga raunhæfa leið til að verja rétt sinn.

Sjálfur hafi Friðrik verið settur í bann frá leigubílastæðum við Keflavíkurflugvöll og taldi að stjórnun svæðisins byggðist of mikið á geðþóttaákvörðunum og þrýstingi frá einstökum aðilum innan kerfisins.

Skutlarar reyna að hafa áhrif á val farþega inni í komusal

Friðrik sagði einnig að svokallaðir skutlarar hefðu í auknum mæli farið að athafna sig inni í komusal flugstöðvarinnar og reynt að ná til ferðamanna áður en þeir kæmu að löglegum leigubílastæðum. Hann taldi þetta hafa grafið undan starfsemi löglegra leigubílstjóra og skapað óöryggi meðal ferðamanna.

Hann gagnrýndi jafnframt breytingar á aðstöðu leigubílstjóra við flugvöllinn og sagði skort á salernis- og kaffiaðstöðu hafa versnað eftir breytingar á skipulagi svæðisins.

Staðan við Keflavíkurflugvöll hafi þróast í langvarandi deilu sem hefði bæði áhrif á atvinnuöryggi leigubílstjóra og orðspor íslenskrar ferðaþjónustu.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila