
Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja neyðarástand ekki ríkja í loftslagsmálum á Íslandi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaða könnunarinnar var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Er neyðarástand i loftslagsmálum á Íslandi að þínu mati?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 86%
Já 11,6%
Hlutlaus 2,5%