
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Sigfús Aðalsteinsson, oddvita Okkar borgar og Baldur Borgþórsson, sem skipar 2.sæti lista Okkar borgar í Síðdegisútvarpinu um Sundabraut, brúarleiðina yfir Grafarvog og áhrif framkvæmdarinnar á íbúðahverfi í Reykjavík. Þeir sögðu fyrirhugaða leið meirihlutans geta haft alvarleg áhrif á Laugardal, Laugarnes, Langholt og Grafarvog og lýstu yfir skýrri andstöðu við núverandi áform. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Brúarleiðin breytir hverfum varanlega
Baldur sagði að með svokallaðri brúarleið yrði Hallsvegur að stórri tengibraut sem myndi leiða aukna umferð í gegnum íbúðahverfi borgarinnar. Hann sagði framkvæmdina tengjast Vesturlandsvegi, Keldnalandi, Úlfarsárdal og Mosfellsbæ og umferðarmagn myndi aukast verulega í hverfum sem hefðu hingað til verið skipulögð sem hefðbundin íbúðasvæði. Hann sagði íbúa í Laugardal, Laugarnesi og Grafarvogi hafa lýst yfir miklum áhyggjum af framkvæmdinni og að Okkar Borg teldi brúarleiðina geta haft neikvæð áhrif á hljóðvist, loftgæði og umferðaröryggi.
Vilja fara gangnaleiðina frá 2007
Baldur sagði Okkar Borg styðja þá útfærslu Sundabrautar sem kynnt var árið 2007 þar sem gert væri ráð fyrir jarðgöngum í stað brúar yfir voginn. Samkvæmt þeirri leið kæmu göngin upp við Geldinganes eftir um 3,8 km leið undir sjó. Að hans mati myndi sú útfærsla dreifa umferð betur og valda minni röskun fyrir íbúðahverfi borgarinnar. Hann sagði einnig að með þeirri leið mætti létta á umferð í Grafarvogi án þess að skapa nýja umferðarás í gegnum rótgróin hverfi.
Vegtollar munu kosta fjölskyldur gríðarlegar fjárhæðir
Þá gagnrýndu þeir jafnframt áform um vegtolla sem tengjast samgönguframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sögðu fjölskyldur geta þurft að greiða hundruð þúsunda króna á ári fyrir daglegan akstur innan Reykjavíkur ef slíkar hugmyndir yrðu að veruleika. Þeir sögðu samgöngustefnu meirihlutans byggjast á því að gera einkabílinn síður aðgengilegan með gjaldtöku, fækkun bílastæða og þéttingu byggðar. Okkar borg vildi hins vegar verja ferðafrelsi borgarbúa og hafna því að fólk yrði neytt yfir í ákveðna ferðamáta með skipulagsákvörðunum og gjöldum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
