
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ólaf Adolfsson, lyfjafræðing og þingmann Sjálfstæðisflokksins, í síðdegisútvarpinu, um fyrirhugað bann við hvalveiðum. Ólafur sagði erfitt fyrir ráðherra að finna nægilega ríka almannahagsmuni til að réttlæta bann við starfsemi sem nú er lögleg og sagði atvinnufrelsið njóta stjórnarskrárverndar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Efast að meirihluti sé fyrir málinu á Alþingi
Ólafur sagði hvalveiðibann ekki vera í stjórnarsáttmála og efaðist um að meirihluti væri fyrir því á Alþingi. Hann vísaði meðal annars til umræðu þingflokksformanna þar sem enginn þeirra hefði lýst sig andvígan hvalveiðum. Sigurjón Þórðarson hefði jafnframt talað afgerandi fyrir veiðunum og fleiri þingmenn Flokks fólksins lýst sambærilegri afstöðu.
Ólafur sagði því geta orðið bratt fyrir ráðherrann að koma banni í gegnum þingið.
Atvinnufrelsið nýtur stjórnarskrárverndar
Hvalveiðar séu sjálfbærar veiðar og lögleg atvinnustarfsemi. Ólafur sagði atvinnufrelsið stjórnarskrárvarinn rétt og að því þyrfti ríka almannahagsmuni til að réttlæta inngrip stjórnvalda. Spurningin væri því hvaða hagsmunir réttlættu bannið.
Ef sýnt væri fram á að hvalkjöt innihéldi spilliefni yfir leyfilegum mörkum væri hægt að setja hömlur á neyslu þess. Sama gæti gilt ef hvalveiðar hefðu mælanleg neikvæð áhrif á ferðaþjónustu eða aðra mikilvæga almannahagsmuni.
Ólafur sagði hins vegar engin merkjanleg spor sjást um að hvalveiðar hefðu haft neikvæð áhrif á ferðaþjónustuna.
MAST taldi ekki ástæðu til inngrips
Arnþrúður spurði um eftirlit Matvælastofnunar með veiðunum og hvort niðurstaðan hefði ekki verið sú að lög hefðu ekki verið brotin.
Ólafur sagði MAST hafa komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til inngrips. Áfram ætti þó að bæta veiðiaðferðir þar sem þess væri kostur svo aflífun dýranna yrði eins mannúðleg og hægt væri. Hann sagði því enn ósvarað hvaða almannahagsmunir væru svo ríkir að þeir gætu réttlætt algert bann við hvalveiðum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
