Ólafur Ragnar: Helstu álitamál ESB-aðildar

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands og einn stofnenda Áfram Ísland, í síðdegisútvarpinu í dag um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið. Í viðtalinu sagði Ólafur að umræðan hefði í of ríkum mæli beinst að efnahagsmálum en að að hans mati snerist atkvæðagreiðslan fyrst og fremst um stjórnskipan landsins, fullveldi Íslands og það hversu mikið vald Íslendingar vildu hafa áfram á eigin forræði. Rætt var um umræðuna um ” að fá sæti við borðið og að ” kíkja í pakkann” sem er algengt að heyra í fjölmiðlum. Hlusta má á ítarlegt viðtal við Ólaf Ragnar í spilaranum hér að neðan.

Í viðtalinu fór Ólafur yfir fjölmörg atriði sem hann telur skipta máli í umræðunni um Evrópusambandið. Þar á meðal ræddi hann um stjórnskipun Íslands, málskotsrétt forseta skv. 26. gr. stjórnarskrárinnar og hvernig aðild að Evrópusambandinu myndi breyta þrígreiningu ríkisvaldsins.

Jafnframt kom hann inn á reynslu Íslands af Icesave-deilunni, stöðu smáríkja innan Evrópusambandsins og hvernig ákvarðanataka og lagasetning er framkvæd innan stofnana Evrópusambandsins. Rætt var um sjávarútvegsmál, yfirráð yfir fiskimiðum, fríverslunarsamninga Íslands við önnur ríki og þau áhrif sem hann segir að ESB-aðild hefði á sjálfstæða samningsstöðu landsins.

Efnahagsmálin fengu einnig töluvert vægi í viðtalinu. Ólafur vék að umræðunni um evruna, vexti og verðlag og sagði að þessi atriði væru ekki í þeim samningum sem fram undan væru. Hann fjallaði jafnframt um umfang hugsanlegra aðildarviðræðna, áhrif þeirra á íslenska stjórnsýslu og stöðu atvinnulífsins.

Þá ræddi Ólafur einnig þróun Evrópusambandsins á síðustu árum, aukna samþættingu sambandsins, öryggis- og varnarmál og hlutverk hefðbundinna fjölmiðla og samfélagsmiðla í umræðunni um Evrópumál. Samhliða því fór hann yfir helstu áherslur nýstofnaðra samtaka Áfram Ísland og þau sjónarmið sem liggja starfsemi þeirra til grundvallar.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila