
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands og einn stofnenda Áfram Ísland, verður gestur Arnþrúðar Karlsdóttur, í beinni útsendingu á Útvarpi Sögu á morgun, laugardaginn 22. ágúst kl. 13:00 – 15:00. Í þættinum verður rætt um helstu álitamálin í umræðunni um Evópusambandið og stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu. Hlustendur fá jafnframt tækifæri til að hringja inn í beina útsendingu í síma 588 1994 og beina spurningum til Ólafs Ragnars um álitamálin í umræðunni um Evrópusambandið.
Evrópumálin tekin fyrir í 2 klukkustunda útsendingu
Þátturinn verður í beinni útsendingu frá klukkan 13 til 15 og verður Arnþrúður Karlsdóttir stjórnandi. Áherslan verður á þau álitaefni sem eru efst á baugi í Evrópusambandsumræðunni.
Ólafur Ragnar hefur um áratugaskeið tekið þátt í íslenskri þjóðmálaumræðu og gegndi embætti forseta Íslands í 20 ár. Ólafur Ragnar er einn stofnenda samtakanna Áfram Ísland sem hefur farið vítt og breytt um landið og fjallað um stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúist n.k. Í þættinum gefst hlustendum kostur á að heyra afstöðu hans til Evrópumálanna og fá svör við spurningum sínum milliliðalaust.
Hlustendur geta lagt spurningar fyrir Ólaf Ragnar
Þátturinn verður í beinni útsendingu á Útvarpi Sögu á morgun, laugardag 22. ágúst frá klukkan 13 til 15.00
Hlustendur geta hringt í beina útsendingu í síma 588 1994.
