
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands og einn stofnenda Áfram Ísland, í síðdegisútvarpinu um hvaða áhrif Ísland hefði innan Evrópusambandsins ef landið gengi í sambandið. Ólafur sagði að því væri oft haldið fram að Ísland fengi „sæti við borðið“, en sjaldan væri útskýrt hversu mikið vægi það sæti hefði í raun við ákvarðanatöku. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
“Sæti við borðið” Vægi Íslands yrði aðeins 0,1 %
Aðspurður um þær fullyrðingar að Ísland fengi aukin áhrif með aðild að Evrópusambandinu sagði Ólafur að mikilvægt væri að skoða hvernig ákvarðanir væru teknar innan stofnana sambandsins.
Hann sagði að samkvæmt þeim reglum sem giltu í ráðherraráði Evrópusambandsins hefði íslenskur ráðherra aðeins um 0,1 % vægi við ákvarðanatöku. Til samanburðar sagði hann að ráðherrar Frakklands og Þýskalands færu saman með um 33 % vægi og það sýndi hversu ráðandi stærstu aðildarríkin væru, þegar þau næðu saman um afstöðu.
6 íslenskir þingmenn af 726 á Evrópuþinginu
Í framhaldi vék Ólafur að Evrópuþinginu og sagði að Ísland fengi þar 6 þingmenn af 726 þingmönnum. Hann sagði jafnframt að þeir myndu ekki starfa sem sérstakur íslenskur þingflokkur heldur ganga til liðs við alþjóðlega flokkahópa ásamt þingmönnum annarra ríkja.
Að hans sögn væri því villandi að tala einfaldlega um að Ísland fengi „sæti við borðið“ án þess að skýra hvernig ákvarðanatakan færi fram og hvert raunverulegt vægi landsins yrði.
Segir Ísland láta af hendi fullt ákvörðunarvald
Ólafur sagði jafnframt að um leið og Ísland fengi þetta 0,1 % vægi innan Evrópusambandsins myndi landið láta af hendi ákvörðunarvald á fjölmörgum sviðum þar sem það færi nú með fullt forræði.
Hann nefndi þar meðal annars samninga um sjávarútvegs og landbúnaðarmál auk fríverslunarsamninga við ríki utan Evrópusambandsins. Á þeim sviðum hefði Ísland að hans sögn í dag fullt ákvörðunarvald en með aðild yrðu ákvarðanir teknar innan sameiginlegs ramma Evrópusambandsins.
Ólafur sagði því að umræðan ætti ekki aðeins að snúast um það að Ísland fengi sæti við borðið heldur einnig hversu mikið vægi það sæti hefði og hvaða ákvörðunarvald sem landið léti af hendi með aðild.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
