Ómar Már skipar oddvitasæti lista Miðflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar

Ómar Már Jónsson fyrrverandi sveitastjóri mun leiða lista Miðflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum. Annað sætið skipar Jósteinn Þorgrímsson framkvæmdastjóri og í þriðja sæti er Sólveig Bjarney Daníelsdóttir geðhjúkrunarfræðingur og aðstoðardeildarstjóri. Hér að neðan má sjá listann í heild sinni.

  1. Ómar Már Jónsson, fyrrverandi sveitarstjóri
  2. Jósteinn Þorgrímsson, framkvæmdastjóri
  3. Sólveig Bjarney Daníelsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur og aðstoðardeildarstjóri
  4. Fjóla Hrund Björnsdóttir, stjórnmálafræðingur
  5. Guðni Ársæll Indriðason, smiður og geitabóndi á Kjalarnesi
  6. Ólafur Kr. Guðmundsson, umferðarsérfræðingur
  7. Kristín Linda Sævarsdóttir, húsmóðir
  8. Anna Kristbjörg Jónsdóttir, skólaliði
  9. Aron Þór Tafjord, framkvæmdastjóri og ráðgjafi
  10. Dorota Zaorska, fornleifafræðingur og matráður
  11. Birgir Stefánsson, rafvélavirki og skipstjóri
  12. Jón Sigurðsson, tónlistarmaður
  13. Bianca Hallveig Sigurðardóttir, hönnuður / Erlendur Magazine
  14. Guðlaugur Sverrisson, rekstrarstjóri
  15. Karen Ósk Arnarsdóttir, stúdent og nemi í lyfjatækni
  16. Gígja Sveinsdóttir, ljósmóðir
  17. Helgi Bjarnason, fyrrverandi bifreiðastjóri
  18. Anna Margrét Grétarsdóttir, eftirlaunaþegi
  19. Guðbjörg H. Ragnarsdóttir, frumkvöðull
  20. Kristján Hall, fyrrverandi framkvæmdastjóri
  21. Bjarney Kristín Ólafsdóttir, sjúkraliði og guðfræðingur
  22. Atli Ásmundsson, eftirlaunaþegi
  23. Vigdís Hauksdóttir, lögfræðingur og borgarfulltrúi

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila