Opið Úkraínubréf Halls Hallssonar til Þórdísar Kolbrúnar

Hallur Hallsson blaðamaður og sagnfræðingur

Ronald Reagan kallaði Sovétríkin Evil Empire árið 1983.

Bandaríkin eru Heimsveldi Illskunnar með „endalausum styrjöldum – Endless Wars“ 21. aldar.

Utanríkisráðherra Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þú segir aftur aftur & aftur að Nato sé varnarbandalag … gott ef ekki friðarbandalag með Ameríku í brúnni. Þú þylur þessa möntru líkt & rispaða plötu embættismanna ráðuneytisins sem hafa heilaþvegið lítt-fróða kollega á undan þér. Höfum eitt á hreinu; samúð mín er með úkraínsku þjóðinni sem þjáist ósegjanlega fórnarlamb hinna spilltu & valdagráðugu. Nú skulum við leggja innrás Rússa  í Úkraínu til hliðar en skoða ferilskrá Ameríku & Nato síðastliðin 30 ár frá því Sovétríkin hrundu & sameinað Þýskaland varð til. Rússar voru eðlilega tortryggnir 40 árum eftir innrás Hitlers í Sovétríkin: 

1990: James Baker utanríkisráðherra USA lofar Boris Yeltsin forseta Rússlands að Nato muni ekki „…færa út kvíarnar til austurs … Not Expand Eastwards“ þó Stór-Þýskaland verði stofnað.

1991: George H.W. Bush boðar afnám þjóðríkja nýja alheimsstjórn New World Order – One Global Government búrókrata í New York & World Economic Forum hinna ofsaríku í Davos.

1999:  Póland, Ungverjaland & Tékkland ganga í Nato. Rússar mótmæla.

2004: Búlgaría, Eistland, Lettland, Litháen, Rúmenía, Slóvakía & Slóvenía ganga í Nato. Rússar mótmæla. 

2008: Úkraínu og Georgíu boðin aðild að Nato á fundi í Búkarest. Rússar mótmæla. Hernaðararmur Vesturlanda stefnir inn í gömlu Sovétríkin … sjálft Rússland.

2009: Albanía and Króatía ganga í Nato, Svartfjallaland 2017, Norður-Mekedónía 2020.

ENDALAUSAR STYRJALDIR

Endalausir styrjaldir Ameríku & Nato

1999: Loftárásir á Belgrad höfuðborg Serbíu.

2001: Innrás í Afganistan, landið sprengt á steinöld.

2003: Innrás í Írak, landið sprengt á steinöld.

2008-2012: Bandaríkin í tíð Obama & Hillary Clinton fjármagna uppreisnir í múslimaríkjum N-Afríku.

2011: Stríð í Lýbíu. Nato sprengir Lýbíu á steinöld með 9.658 loftárásum í Operation Unified Protector.

2012: Stríð í Sýrlandi. Bandaríkin fjármagna ISIS, landið sprengt á steinöld.

2017-2021: Bandaríkin hætta stríðsrekstri. Opinber stefna: hermenn heim.

2020-2022: Covid-faraldur berst útfrá vírus-rannsóknarstöð í Wuhan Kína. Íslandi stjórnað með tilskipunum & lýðréttindi fólks skert. Börnum 5-11 ára skipað að vaxxinerast með m-RNA tilraunaefni. Breskir þegnar stefna Boris Johnson & fimmtán öðrum til Alþjóða glæpadómstólins í Haag fyrir glæpi gegn mannkyni vegna Covid. Trudeau lokar bankareikningum kanadískra borgara & gerir trukka upptæka. Ísland & vestræn ríki þegja um ofbeldið.

2022: Stríð brýst út í Úkraínu eftir 2017-2021 friðarferli í Mið-Austurlöndum.

ÍSLAND OPNAÐ Á GÁTT 2017

Milljónir manna á flótta streyma til Evrópu & landamæri Ameríku eru á ný opin svo glæpahyski, dópsmyglarar og terroristar streyma á þúsundavís inn í Ameríku á degi hverjum. Eftir valdatöku ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttir [2017) opnaði Ísland landamæri upp á gátt & afhendir Brussel auðlindir þjóðarinnar.

2014: Viktor Yushchenko [2005-2010] colour-forsetinn með „örin“ gefur út tilskipun á síðasta valdadegi þess efnis að nazistinn & njósnari Hitlers, Stepan Bandera [1909-1959] sé Hetja Úkraínu; Bandera var leiðtogi OUN – Organisation of Ukrainian Nationalists sem stóð fyrir fjöldamorðum á Gyðingum, Rússum & Pólverjum, samkvæmt skjölum CIA.

2013-14: Obama & Biden bera eld að Úkraínu. Valdaráni í Úkraínu stýrt úr bandaríska sendiráðinu í Kænugarði í bandalagi við George Soros & fasískar neo-nasízkar sveitir í anda öfga demókratízkra Antifa-sveita sem kveikja í amerískum borgum. Maidan-Massacre: Tugir myrtir af leyniskyttum í Kænugarði. Fasískar dauðasveitir kveikja í Verkalýðshúsinu í Odessa við Svartahafið þar sem 48 manns af rússnesku bergi brotnir eru brenndir inni.

2014: Forseti Úkraínu Viktor Yukuschenko flýr land. Rússar taka yfir Krímskaga eftir valdaránið í Kænugarði. Ofsóknir á hendur Rússum hefjast í Donbass & Luhansk.

2016: Úkraínskur saksóknari rekinn að kröfu Joe Biden fyrir að rannsaka soninn gerspillta, Hunter Biden. „We’re leaving in six hours, if the prosecutor’s not fired, you’re not getting the Billion$. Oh, son of a bi**h. (Laughter) Got fired,“ montaði Biden sig. 

2018: Rússar í Donbass & Luhansk lýsa yfir sjálfstjórn, 14.000 manns hafa fallið til dagsins í dag.

2020: Demókratar & seníll Joe Biden stela kosningunum í USA; stærstu kosningasvik sögunnar sem amerískir falsmiðlar CNN, NYT, WaPo Reuters & rest fela fyrir bandarísku þjóðinni & veröldinni.

2021: Biden & Nato magna deilur í Úkraínu. Nato áréttar aðild Úkraínu & Georgíu.

Kæra Þórdís Kolbrún. Þú gætir spurt Kötu hvað Davos hinna ofsaríku eigi við með að kynna hana sem Agenda Contributor; verjanda málstaðarins. Þú gætir líka spurt af hverju RÚV tekur þátt í samstarfi EBU undir forystu BBC um „samræmdar fréttir á rauntíma.“ Hver heimilaði samstillingu RÚV & falsmiðla Davos? Þú gætir spurt Stoltenberg hvort loforð Nato skipti engu? Þú gætir spurt Festu útibú Davos á Íslandi um Great Reset & Klaus Schwab.

Lærðu að þekkja lygina, kæra Þórdís Kolbrún & þú finnur sannleikann. Langflestum valdhöfum er hinn þröngi vegur lokaður. Sál þín & þinna er í húfi, líkt & okkar hinna en kannski þekkir þú ekki Jesús Krist líkt & þorri barna og ungt fólk í dag. Við lifum á Endatímum, svo segir í Völuspá & Biblíunni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila