
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Símon Þorkel Símonarson Olsen, íbúa í Gufunesi í þættinum Sipulagsmál, um byggingargalla og ítrekaðar framkvæmdir í húsunum við Jöfurbás í Gufunesi. Símon sagði að nú þyrfti að fara inn í allar 137 íbúðirnar, opna veggi og kanna pípulagnir og festingar eftir að úrtak sýndi að nokkra sentimetra vantaði upp á fráganginn. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Fara þarf inn í allar 137 íbúðirnar
Símon sagði málið hafa komið upp þegar festingar inni í veggjum voru skoðaðar í nokkrum íbúðum. Í úrtaki hefði komið í ljós að nokkra sentimetra vantaði upp á pípulagnir og festingar. Ekki hefði enn verið farið inn í vegginn hjá honum sjálfum og þar hefði ekkert gefið sig. Ákveðið hefði hins vegar verið að kanna allar íbúðirnar.
Verkið felur í sér að opna veggi, athuga fráganginn, gera við þar sem þess gerist þörf, loka veggnum aftur og mála. Símon sagði framkvæmdirnar vera að hefjast þessa dagana og að þær gætu staðið fram á næsta ár.
Pípulagningamaðurinn ber kostnaðinn
Pípulagningamaðurinn sem vann við kerfið á sínum tíma hefur að sögn Símons tekið ábyrgð á þessum hluta málsins og ætlar að bera kostnaðinn. Símon sagði það jákvætt og þar væri komið til móts við íbúana. Þeir þyrftu þó áfram að þola raskið sem fylgir því að opna veggi inni á heimilunum.
Hjá honum liggja lagnirnar við baðherbergið þar sem sturta, salerni og þvottavél eru á sama svæði. Hann á von á að farið verði inn í vegginn frá anddyrinu, hinum megin við sturtuna og salernið, svo raskið verði eins lítið og hægt er.
Flætt hefur í tæknirými
Pípulagnamálið er ekki fyrsta vandamálið sem komið hefur upp í kerfinu. Símon sagði að fyrir sumarið hefði þurft að breyta þrýstingsjöfnurum í öllum rýmum vegna heitavatnskerfisins. Kerfið hefði ekki ráðið við álagið sem því var ætlað og mikið hefði lekið. Flóð hefðu orðið í nokkrum tæknirýmum áður en ráðist var í breytingarnar.
Hann lýsti stöðunni þannig að stöðugt væri eitthvað nýtt að koma upp í húsunum og sagði það þreytandi að fá aftur tilkynningu um framkvæmdir inni á heimilinu eftir allt sem áður hefði gengið á.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
