Opnað fyrir umsóknir um matjurtagarða í Reykjavík

Opnað var fyrir umsóknir Reykvíkinga um matjurtagarða í borginni föstudaginn 15. mars. Um 600 matjurtagarðar eru leigðir út á vegum borgarinnar, þar af eru tæplega 200 í Skammadal.

Matjurtagarðarnir eru í boði í Vesturbæ, Fossvogi, Laugardal, Árbæ, Grafarvogi og Kjalarnesi við Fólkvang. Matjurtagarðarnir verða opnaðir 1. maí.

Í tilkynningu kemur fram að garðarnir verði merktir. Vatn er aðgengilegt á öllum svæðum. Garðáhöld, plöntur og útsæði fylgja ekki með görðunum. Fyrir byrjendur má geta þess að algengast er að fólk rækti kartöflur og allskonar kál og rófur. Einnig er gott að hafa í huga að hægt er að nálgast forræktað grænmeti í allflestum gróðrastöðvum.

Leigugjöld ársins 2024 eru 7.200 kr. fyrir garðland í Skammadal (u.þ.b. 100 fermetrar) og 6.000 kr. fyrir garð (u.þ.b. 20 fermetrar). Kassar í Grafarvogi, Árbæ, Fossvogi og Kjalarnesi verða á kr. 4.800 kr. kassinn (8 fermetrar). Úthlutun garða verður afturkölluð hafi greiðsla ekki borist á eindaga.

Fyrir áhugasama er hægt að senda umsóknir á netfangið matjurtagardar@reykjavik.is.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila