
Alþingi samþykkti í dag frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulögum sem fela í sér umfangsmestu endurskoðun á lagaumgjörð rammaáætlunar frá upphafi.
Orkuöflun skipulögð til 25 ára
Með nýjum lögum er kveðið á um að mótuð verði stefna um orkuöflun til næstu 25 ára með tölulegum markmiðum. Verkefnisstjórn rammaáætlunar ber að taka mið af þeirri stefnu við flokkun virkjunarhugmynda og verður þannig skýrari stefnumótun lögð til grundvallar mati á nýjum orkukostum.
Samfellt ferli og lögbundnir tímafrestir
Ferli rammaáætlunar verður gert samfellt þannig að virkjunarhugmyndir komi til afgreiðslu hjá ráðherra og Alþingi um leið og faglegu mati er lokið í stað þess að bíða eftir afgreiðslu á fjögurra ára fresti. Þá eru fastir tímafrestir fyrir alla sem koma að ferlinu festir í lögum, samráðsferlum fækkað og frestur sveitarstjórna til ákvörðunar um landnotkun styttur.
Undanþágur og skýrari verndarsvæði
Ráðherra fær heimild til að veita undanþágu til matsskyldra rannsókna á virkjunarhugmyndum í biðflokki að uppfylltum skilyrðum svo unnt sé að þróa slíka kosti áfram. Jafnframt er felld brott sú regla að skortur á upplýsingum leiði sjálfkrafa til þess að virkjunarhugmynd fari í biðflokk.
Lögin skýra einnig heimildir til að afmarka verndarsvæði í samræmi við dóm Hæstaréttar frá 2024 þar sem friðlýsing tiltekins svæðis í verndarflokki var dæmd ólögmæt vegna þess að svæðið hafði ekki verið afmarkað með formlega réttum hætti við samþykkt á Alþingi.
