
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur sem skipar 3. sæti lista Samfylkingarinnar í Reykjavík og Guðnýju Maríu Jóhannsdóttur sem skipar 6. sæti lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í síðdegisútvarpinu í dag um húsnæðisuppbyggingu, þéttingu byggðar og stöðu fyrirtækja á Ártúnshöfða. Þar kom fram að flokkarnir eru ósammála um núverandi skipulagsstefnu Reykjavíkur og hvort hún taki nægilegt mið af þörfum íbúa og atvinnulífs. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Sjálfstæðisflokkurinn vill draga úr þéttingu byggðar
Guðný María sagði að margir borgarbúar vildu fjölbreyttari búsetukosti en núverandi stefna borgarinnar bjóði upp á. Hún sagði Sjálfstæðisflokkinn vilja hægja á ofurþéttingu byggðar og leggja meiri áherslu á uppbyggingu nýrra hverfa með raðhúsum, sérbýli og fjölbreyttari húsnæðistegundum. Að hennar mati hafi skipulag síðustu ára ekki verið í takt við raunverulegar þarfir fjölskyldna eða samgöngur í borginni. Guðný María gagnrýndi einnig að ný hverfi væru skipulögð með færri bílastæðum áður en fullnægjandi almenningssamgöngur væru komnar til staðar.
Steinunn sagði hins vegar að þétting byggðar hefði almennt verið rétt stefna þar sem hún nýtti betur innviði, þjónustu og veitukerfi borgarinnar. Hún sagði þó að næstu ár myndu einnig einkennast af uppbyggingu nýrra hverfa, meðal annars í Keldnalandi, Úlfarsárdal og Hallahverfi, þar sem byggðar yrðu bæði íbúðir í fjölbýli og sérbýli.
Deilt um stöðu fyrirtækja á Ártúnshöfða
Talsverð umræða varð um uppbyggingaráform á Ártúnshöfða þar sem þúsundir nýrra íbúða eru fyrirhugaðar. Steinunn sagði eðlilegt að borgarsvæði breyttust með tímanum og atvinnustarfsemi færðist til, eftir því sem ný hverfi risu. Guðný María sagði hins vegar að rekstraraðilar á svæðinu upplifðu að ekki væri farið jafnt með fyrirtæki sem væru með lóðarleigusamninga á svæðinu. Hún sagði suma aðila hafa fengið uppbyggingarheimildir eða samninga á meðan aðrir sætu eftir án sambærilegra lausna.
Að mati Guðnýjar Maríu bæri Reykjavíkurborg ábyrgð á að tryggja jafnræði gagnvart fyrirtækjum sem hefðu starfað lengi á svæðinu og skapað þar verðmæti og atvinnu.
Lóðaverð og fasteignamarkaðurinn
Í viðtalinu var einnig rætt um áhrif lóðaverðs á fasteignamarkaðinn í Reykjavík. Steinunn sagði almennt eðlilegt að sveitarfélög reyndu að hámarka verðmæti lóða sem væru seldar en tók fram að hún þekkti ekki nákvæmlega hvernig verðlagning lóða hefði þróast undanfarin ár.
Báðar voru þó sammála um að húsnæðismál og skipulag nýrra hverfa yrðu meðal stærstu verkefna næsta kjörtímabils, bæði vegna fólksfjölgunar og mikillar uppbyggingar sem fram undan er í Reykjavík.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
