Ótti notaður til að stjórna almenningi og draga úr mótstöðu

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jóhann Grétarsson, prest og forstöðumann Boðunarkirkjunnar, Magneu Sturludóttur, prest Boðunarkirkjunnar og Elínu Ósk Óskarsdóttur óperusöngkonu í síðdegisútvarpinu í dag, um hvernig ótti hefur verið notaður til að hafa áhrif á fólk. Arnþrúður gagnrýndi að ótti væri sífellt nýttur sem stjórntæki í samfélaginu og nefndi bankahrunið, COVID og efnahagsástandið og háa vexti, sem dæmi. Jóhann og Magnea rifjuðu jafnframt upp hvernig kirkjan hefði áður alið á ótta til að stjórna almenningi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Óttinn dregur úr mótstöðu almennings

Arnþrúður lýsti því hvernig stjórnvöld gætu haft áhrif á hegðun fólks með því að halda því í stöðugum ótta við framtíðina. Hún benti á að þegar fólk hefði miklar áhyggjur af afkomu sinni og öryggi ætti það erfiðara með að andmæla ákvörðunum yfirvalda.

Nefndi Arnþrúður nokkur dæmi um þetta, meðal annars bankahrunið þegar ótti greip um sig meðal almennings. Síðar hefði COVID-faraldurinn skapað nýjar aðstæður þar sem fólk var hvatt til að halda sig heima og óttast smit og afleiðingar Covid.

Nú væri efnahagsástandið orðið enn eitt tilefnið til að ala á áhyggjum. Sífelld skilaboð um erfiðleika, hærri vexti, óvissu og stríðsástand gætu haft þau áhrif að fólk missti kjarkinn til að standa gegn því sem það væri ósammála.

Millistéttin verði sífellt berskjaldaðri

Arnþrúður gagnrýndi sérstaklega þá þróun að fjárhagsleg staða millistéttarinnar versnaði og sífellt fleiri ættu erfitt með að ná endum saman.

Með því að veikja fjárhagslegt sjálfstæði almennings væri jafnframt dregið úr möguleikum fólks til að mótmæla. Þeir sem þyrftu að verja allri orku sinni í að tryggja framfærslu fjölskyldunnar hefðu hvorki tíma né kraft til að berjast gegn ákvörðunum stjórnvalda.

Ótti og fjárhagslegt óöryggi er stjórntæki sem heldur almenningi í skefjum.

Þróunin væri ekki bundin við Ísland heldur mætti sjá sambærilegar aðstæður í öðrum löndum þar sem efnahagslegur þrýstingur og óvissa hefðu áhrif á daglegt líf fólks.

Kirkjan notaði ótta til að halda völdum

Jóhann rifjaði upp hvernig kirkjan hefði á fyrri öldum beitt ótta við dauðann og refsingu eftir hann til að stjórna fólki. Sérstaklega nefndi hann kenninguna um hreinsunareldinn þar sem fólki hefði verið kennt að það gæti þurft að þjást eftir dauðann vegna synda sinna.

Óttinn við slíka refsingu hefði skapað aðstæður þar sem kirkjan gat haft mikil áhrif á hegðun og ákvarðanir almennings.

Magnea gagnrýndi einnig að kirkjan hefði nýtt óttann með þessum hætti og sagði það hafa verið í andstöðu við þann kærleiksboðskap sem kristin trú ætti að standa fyrir.

Jóhann tók undir að svipaðar aðferðir væru enn notaðar í samfélaginu þegar fólk væri látið óttast afleiðingar þess að fara gegn ríkjandi stefnu.

Bænin veitir hvíld frá ótta

Magnea lýsti því hvernig bænin væri mikilvægur þáttur í starfi Boðunarkirkjunnar. Þar gætu safnaðarmeðlimir lagt fram bænaefni sín og aðrir beðið með þeim. Hún sagði trúna veita fólki tækifæri til að leggja áhyggjur sínar í hendur Guðs í stað þess að láta óttann ráða ferðinni.

Jóhann vísaði til orða Páls postula um að kristið fólk ætti ekki að vera áhyggjufullt heldur bera óskir sínar fram fyrir Guð með bæn og þakkargjörð.

Í stað þess að ala á hræðslu ætti kirkjan að boða kærleika og traust. Sá boðskapur væri andstæður þeirri stjórnun með ótta sem bæði kirkjuleg og veraldleg yfirvöld hefðu beitt í gegnum tíðina.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila