
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og fyrrum rektor Landbúnaðarháskólans á Hólum í Hjaltadal í síðdegisútvarpinu í dag, um áhrif fyrirhugaðrar sameiningar Háskólans á Hólum við Háskóla Íslands á verklegt nám og sérhæfða starfsemi skólans. Jón sagði, að með frumvarpinu væri stefnt í óvissu starfsemi sem byggst hefði upp á Hólum á sviði hestamennsku, fiskeldis og ferðamálanáms. Stjórn væru að vanmeta mikilvægi verklegrar menntunar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Sérstaða Hóla byggð á verklegu námi
Jón sagði að Háskólinn á Hólum hefði um árabil verið miðstöð íslenskrar hestamennsku og hrossaræktar þar sem kennt væri allt sem tengdist reiðmennsku, tamningum og ræktun íslenska hestsins. Hann sagði starfsemina hafa alþjóðlega viðurkenningu og gegna mikilvægu hlutverki fyrir atvinnulíf og ferðaþjónustu í landinu. Að hans mati væri ekki hægt að færa slíkt nám inn í almennt háskólakerfi, án þess að sérstaðan glataðist. Hann sagði að styrkur Hóla hefði alltaf falist í því að námið væri nátengt staðnum sjálfum, búrekstri og daglegri verklegri kennslu.
Óvissa um framtíð fiskeldis og rannsókna
Í viðtalinu sagði Jón einnig að Hólar hefðu gegnt mikilvægu hlutverki í menntun og rannsóknum á sviði fiskeldis. Hann benti á að á sama tíma og stjórnvöld hygðust leggja niður sjálfstæði skólans, stæði til að byggja nýtt rannsóknahús fyrir fiskeldi við Hóla. Hann sagði að frumvarpið skýrði ekki hvernig verkleg kennsla, rannsóknastarf eða sérhæfð aðstaða yrði rekin eftir breytingarnar. Þá lægi ekkert fyrir um hvernig halda ætti áfram þeirri uppbyggingu sem átt hefði sér stað á undanförnum árum.
Verklegt nám hefur setið á hakanum
Jón sagði að verklegt nám, hefði lengi átt undir högg að sækja í íslensku menntakerfi og frumvarpið væri enn eitt dæmið um þróun, þar sem bóklegt nám og miðstýring væru sett í forgang. Hann sagði að starfsemin á Hólum hefði verið byggð upp í nánum tengslum við atvinnugreinar landsins og samfélagið í kring. Með því að færa stjórnun og ábyrgð frá Hólum væri hætta á að sérþekking og frumkvæði minnkaði smám saman.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
