Óvissustigi lýst yfir vegna veðurs

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórana á öllu landinu lýsa yfir óvissustigi Almannavarna vegna óveðurs sem framundan er.  

Fyrsta appelsínugula viðvörun Veðurstofunnar mun taka gildi kl. 6:00 í fyrramálið. Góðu fréttirnar eru að veðrið fer hratt yfir og síðasta appelsínugula viðvörunin rennur úr gildi um hádegisbilið.

Almannavarnir biðla til almennings um að ganga frá lausamunum til að fyrirbyggja foktjón. Þá er einnig mikilvægt að byggingarfyrirtæki hugi að sínum svæðum og geri ráðstafanir til að koma í veg fyrir og draga úr líkum á tjóni.  Miklar líkur eru á að veðrið muni hafa áhrif á samgöngur og eru vegfarendur beðnir um að vera ekki á ferðinni að óþörfu á þeim svæðum þar sem veðrið er verst hverju sinni. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.

Samráðsfundur Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra var haldinn klukkan 16:00 í dag þar sem farið var yfir komandi veður, möguleg áhrif og viðbragð við þeim.  Ákveðið hefur verið að virkja Samhæfingarstöð Almannavarna klukkan 5:00 í fyrramálið.

Inn á umferdin.is er hægt að fylgjast með rauntímaupplýsingum um færð á vegum og inn á vedur.is er eins og alltaf hægt að fylgjast með veðrinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila